„Svalasta sjöa landsins“ áfram í rauðu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. maí 2023 15:15 Þórskonur spila í Subway deildinni næsta vetur og leikmannamálin eru að skýrast. @thormflkvk Nýliðar Þórs Akureyrar í Subway deild kvenna í körfubolta eru að ganga frá sínum leikmannamálum. Félagið hefur endursamið við tvö öfluga leikmenn og fengið til sín einn af bestu leikmönnum 1. deildarinnar í vetur.
Körfuknattleiksdeild Þórs hefur endursamið við tvo lykilleikmenn kvennaliðs Þórs eða fyrirliðann Heiðu Hlín Björnsdóttur og leikstjórnandann Evu Wium Elíasdóttur. Nýr leikmaður liðsins er síðan Hulda Ósk Bergsteinsdóttir sem kemur frá KR. Hulda Ósk Bergsteinsdóttir hefur verið í úrvalsliði ársins í 1. deildinni undanfarin tvö tímabil.Þór Akureyri Hulda Ósk er 24 ára miðherji sem er 180 sentímetrar að hæð en uppeldisfélag hennar er Njarðvík. Þórsarar segja frá nýja leikmanni sínum á heimasíðu sinni. Hulda Ósk var valin í lið ársins í 1. deildinni í vetur af þjálfurum, fyrirliðum og formönnum félaganna í deildinni, en missti þó af sjálfri verðlaunahátíðinni þar sem hún frétti einungis af valinu í fjölmiðlum. Skilaboð KKÍ í gegnum stjórnina hjá KR rötuðu ekki til hennar sjálfrar. Hún hefur verið valin í úrvalslið 1. deildar undanfarin tvö tímabil. Hulda spilaði 28 leiki með KR síðastliðinn vetur, skoraði að meðaltali 12,3 stig í leik, tók 6,7 fráköst, gaf 1,9 stoðsendingar og með 15,6 framlagspunkta að meðaltali í leik. View this post on Instagram A post shared by Þór - Meistaraflokkur kvk (@thormflkvk) Heiða Hlín Björnsdóttir er framherji og fyrirliði Þórsliðsins. Hún var valin körfuknattleikskona Þórs í fyrra. Heiða spilaði að meðaltali tæpar 30 mínútur í leik á liðnu tímabili þegar Þórsliðið tryggði sér sæti í efstu deild. Hún skoraði að meðaltali 11 stig í leik, tók 4,3 fráköst, átti 1,8 stoðsendingar og með 8,1 framlagspunkt að meðaltali í leik. „Heiða Hlín er frábær leikmaður sem og einstaklingur og gífurlega mikilvæg fyrir þennan hóp innan sem utan vallar. Eftir sölutölur síðustu daga í harðfisksölu félagsins kom svo ekkert annað til greina en að semja við Heiðu Hlín strax, enda annar hver maður á Akureyri búinn að kaupa harðfisk af henni. Mikil fyrirmynd hún Heiða Hlín,“ sagði Daníel Andri Halldórsson, þjálfari Þórsliðsins, í viðtali á miðlum Þórsara. View this post on Instagram A post shared by Þór - Meistaraflokkur kvk (@thormflkvk) Eva Wium Elíasdóttir er leikstjórnandi, og ein af efnilegri körfuboltakonum landsins í þeirri stöðu. Hún hefur spilað með meistaraflokki frá 2018, fyrst með Þór, síðan Tindastóli þegar Þórsliðið var lagt niður, og svo aftur með Þór frá 2021. Eva hefur spilað samtals 91 leik í meistaraflokki, þar af 74 með Þór. Eva spilaði 31 leiki með Þórsliðinu á nýafstöðnu tímabili, að meðaltali rúmar 32 mínútur í leik. Hún skoraði að meðaltali 11,9 stig í leik, tók 5,1 frákast, átti 3,9 stoðsendingar og með 11,2 framlagspunkta að meðaltali. Eva spilar með U20 landsliði Íslands. „Eva er gífurlega efnileg og skemmtileg stelpa sem hefur verið heiður að þjálfa. Það er því mikið fagnaðarefni að svalasta sjöa landsins spili áfram í rauðu, enda mikið af Þórskrökkum búið að kaupa treyjuna hennar, og til þess er leikurinn, fyrir aðdáendurna!,“ sagði Daníel Andri Halldórsson, þjálfari Þórsliðsins, í viðtali á miðlum Þórsara.
Subway-deild kvenna Þór Akureyri Mest lesið Garnacho búinn að biðjast afsökunar Enski boltinn „Ef þetta er rautt, af hverju komast aðrir upp með að brjóta miklu oftar?“ Íslenski boltinn „Allt í lagi fram að rauða spjaldinu en breyttist mikið þá“ Íslenski boltinn Frá Englandsmeisturunum til meistaraliðs Bandaríkjanna Enski boltinn „Ég elska Keflavík og ég elska Ísland“ Körfubolti „Særð dýr eru hættulegustu dýrin“ Körfubolti „Við treystum á Remy og guð í kvöld“ Körfubolti Uppgjör, viðtöl og myndir: Stjarnan - Valur 1-0 | Stjörnumenn komnir á blað Íslenski boltinn Uppgjörið: Grindavík - Tindastóll 91-89 | Íslandsmeisturunum sópað úr leik í Smáranum Körfubolti ÍA kynnir Rúnar Má til leiks Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Við treystum á Remy og guð í kvöld“ „Ég elska Keflavík og ég elska Ísland“ „Særð dýr eru hættulegustu dýrin“ Uppgjörið og viðtöl: Keflavík - Álftanes 88-84 | Keflvíkingar tóku forystuna í hörkuleik „Fínt að enda þetta þannig að fólk fái eitthvað fyrir peninginn“ Uppgjörið: Grindavík - Tindastóll 91-89 | Íslandsmeisturunum sópað úr leik í Smáranum Uppgjör og viðtöl: Valur - Njarðvík 67-82 | Íslandsmeistararnir í sumarfrí Verður fyrsta konan til að dæma í úrslitakeppni NBA í tólf ár Segir að hann verði bráðum bestur í NBA „Með því glórulausasta sem ég hef séð“ Bað Caitlin Clark afsökunar á karlrembunni í sér „Hlakka rosalega til að sjá troðfullt hús á mánudaginn“ Booker um sparkið í stellið: „Partur af körfuboltanum en þetta var allt of mikið“ Uppgjör og viðtöl: Njarðvík - Þór Þ. 107-110 | Þórsarar sigri frá undanúrslitum Uppgjörið: Valur - Höttur 94-74 | Valsmenn taka forystuna í einvíginu Ramos rekinn úr húsi fyrir að sparka í klof Bookers Curry reyndi að fá Clark til Under Armour en Nike hafði betur Lét leikmenn Tindastóls heyra það: Fólk hérna á þetta ekki skilið Baulað á Sixers en liðið kom til baka og komst áfram „Við bara fóðruðum dýrið og dýrið borðaði“ „Þær skoruðu full auðveldlega á okkur í dag“ „Sem betur fer var leikurinn bara 40 mínútur í dag“ Uppgjörið: Keflavík - Fjölnir 88-72 | Deildarmeistararnir flugu í undanúrslit Uppgjör, viðtöl og myndir: Haukar - Stjarnan 80-78 | Haukasigur eftir dramatík LeBron fer fyrir ógnarsterku liði Bandaríkjanna á ÓL Golden State komst ekki í úrslitakeppnina en Lakers verður með „Erum að spila á móti ríkjandi Íslandsmeisturum og þurfum að vera klárar“ „Náðum að keyra upp hraðann á réttum mómentum“ „Ég held að þetta komi bara með reynslunni“ „Náðum að valta yfir þær í seinni hálfleik“ Sjá meira
Uppgjörið: Grindavík - Tindastóll 91-89 | Íslandsmeisturunum sópað úr leik í Smáranum Körfubolti
Uppgjörið: Grindavík - Tindastóll 91-89 | Íslandsmeisturunum sópað úr leik í Smáranum Körfubolti