Stefna á tímamótageimskot á miðvikudagskvöldið Samúel Karl Ólason skrifar 13. september 2021 14:46 Geimfararnir fjórir munu verja þremur dögum á braut um jörðina og er Netflix að gera ferð þeirra skil í sjónvarpsþáttum. Frá vinstri: Chris Sembroski, Jared Isaacman, Hayley Arceneaux og Sian proctor. Inspiriation4 SpaceX stefnir að því að skjóta fjórum almennum borgurum á braut um jörðu á miðvikudagskvöld. Búið er að koma Falcon 9 eldflaug og Crew Dragon geimfari fyrir á skotpalli og virðist allt tilbúið fyrir geimskotið, sem er það fyrsta sinnar tegundar.
Það er að segja, þetta verður í fyrsta sinn sem geimferð er farin af eingöngu almennum borgurum. Þá fylgja tökumenn frá Netflix geimförunum verðandi um hvert fótmál. Ferðin er fjármögnum af auðjöfrinum Jared Isaacman og er markmiðið að safna tvö hundruð milljónum dala til styrktar St Jude barnaspítalans. Með Isaacman fara þau Sian Proctor, jarðvísindamaður, Christopher Sembrosi, fyrrverandi meðlimur í flugher Bandaríkjanna, og Haley Arceneaux, sem starfar hjá St. Jude og lifði af krabbamein sem hún fékk í æsku. Alþjóðlega geimstöðin er á braut um jörðu í um fjögur hundruð kílómetra hæð en þessi hópur mun fara hærra en það. Sendirförin ber titilinn Inspiration4. Skotglugginn, eins og það er kallað, opnast seint á miðvikudagskvöld eða á miðnætti hér á Íslandi. Hann verður opinn í fimm klukkustundir. Í morgun var kveikt á hreyflum eldflaugarinnar sem bera á geimfarana á sporbraut. Sú tilraun heppnaðist vel í Kennedy Geimmiðstöðinni í Flórída. Static fire test of Falcon 9 complete targeting Wednesday, September 15 for launch of Dragon s first all-civilian human spaceflight. The 5-hour launch window opens at 8:02 p.m. EDT— SpaceX (@SpaceX) September 13, 2021 Það tiltekna geimfar sem hópurinn mun ferðast með var notað til að ferja hóp geimfara til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar í fyrra. Farið, sem ber heitið Resilience, var í geimnum í hálft ár og var lent aftur á jörðinni í apríl. Crew Dragon geimförin eru talin háþróuð og eru að miklu leyti sjálfvirk. Space.com segir að fjórmenningarnir hafi varið undanförnum sex mánuðum í að æfa sig og undirbúa fyrir geimskotið. Þau hafi meðal annars þurft að læra á geimfarið og styrkja sig líkamlega. SpaceX completed a full rehearsal of launch day activities with the @Inspiration4x crew pic.twitter.com/ZxvKCNbMA0— SpaceX (@SpaceX) September 13, 2021 Isaacman er ekki fyrsti auðjöfurinn til að setja stefnuna út í geim á þessu ári. Fyrir hafa bæði Jeff Bezos og Richard Branson farið út í geim, þó um það megi deila, á geimförum sem hönnuð eru af fyrirtækjum í þeirra eigu. Þessi ferð er þó töluvert umfangsmeiri en ferðir Bezos og Branson. Isaacman vill ekki viðurkenna það að hann sé enn ein hégómafullur auðjöfur sem vilji leika sér í geimnum. Í fyrsta Netflix-þættinum um geimferðina sagði hann að þau gætu látið margt gott af sér leiða. Á hann þar sérstaklega við fjáröflunina fyrir St. Jude en hann hefur sjálfur heitið hundrað milljónum dala til sjúkrahússins.
SpaceX Geimurinn Netflix Tengdar fréttir SpaceX skýtur þeim á braut um jörðu og Netflix fangar ævintýrið á filmu SpaceX ætlar að skjóta hópi almennra borgara á braut um jörðu í næsta mánuði og verður geimskotinu og aðdraganda þess gerð skil í heimildaþáttum Netflix. Forsvarsmenn streymisveitunnar segja þetta í fyrsta sinn sem fyrirtækið sýni heimildaþætti „nærri því í rauntíma“. 4. ágúst 2021 15:30 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Fannst látinn í klefa sínum á Litla Hrauni Innlent Vinnubrögðin gátu leitt til dauða Innlent Halla fremst með 29,7 prósent í nýrri könnun Prósents Innlent Glórulausar framkvæmdir raski velferð íbúa hjúkrunarheimilis Innlent Hafi mögulega reynt að lenda á ísilögðu vatninu Innlent Hindraði mann sem ætlaði að komast úr bíl við Bónusbúð Innlent Lík þriggja brimbrettakappa fundust í brunni í Mexíkó Erlent Segir viðmælendur sitja undir hótunum netaktívista Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Sökktu rússneskum hraðbát með sjálfsprengidróna Erlent Fleiri fréttir Reiðir yfir ummælum Macrons og halda æfingar með kjarnorkuvopn Sökktu rússneskum hraðbát með sjálfsprengidróna Verður næsti formaður Skoska þjóðarflokksins Sakaði Biden um að reka lögregluríki í anda nasista Aukastörf meðfram þingmennsku skapi hættu á hagsmunaárekstrum Lík þriggja brimbrettakappa fundust í brunni í Mexíkó Xi og Macron ræða kínverska rafbíla og franskt koníak Um 100.000 sagt að rýma svæði á Rafah vegna „afmarkaðra aðgerða“ Búnaður Al Jazeera gerður upptækur og miðillinn í bann Ísrael samþykkir ekki vopnahlé Ísraelsmenn vísa fréttamönnum á dyr Íhaldsflokkurinn laut í lægra haldi í sveitarstjórnarkosningum Tuga enn saknað og 55 látnir Verður borgarstjóri Lundúna þriðja kjörtímabilið í röð Auka viðbúnað í aðdraganda Eurovision Forseti Argentínu skýtur föstum skotum á spænsku ríkisstjórnina Berlínarborg vill losna við glæsivillu Göbbels Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Kreml fordæmir ummæli Macrons og Camerons Reyna að sækja fyrsta sýnið frá fjærhlið tunglsins Hlustuðu á Trump og Cohen tala um þagnargreiðslu Danir rýmka reglur um þungunarrof Þrjátíu látnir og tuga saknað eftir flóð í Brasilíu Segja frumvarp um gyðingaandúð í andstöðu við Biblíuna Tyrkir stöðva öll viðskipti við Ísrael „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Segir fólk eiga rétt til mótmæla en ekki til óreiðu Umfangsmikil mótmæli vegna „rússneskra“ laga í Georgíu Enn í basli með skemmdir á hitaskildi Orion Sjá meira
SpaceX skýtur þeim á braut um jörðu og Netflix fangar ævintýrið á filmu SpaceX ætlar að skjóta hópi almennra borgara á braut um jörðu í næsta mánuði og verður geimskotinu og aðdraganda þess gerð skil í heimildaþáttum Netflix. Forsvarsmenn streymisveitunnar segja þetta í fyrsta sinn sem fyrirtækið sýni heimildaþætti „nærri því í rauntíma“. 4. ágúst 2021 15:30