„Píratar stýra ekki þinginu, þeir eru ekki í meirihluta“ Vésteinn Örn Pétursson skrifar 1. febrúar 2023 22:24 Bryndís Haraldsdóttir er formaður allsherjar- og menntamálanefndar og þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Vísir/Vilhelm Þingmenn hafa rætt frumvarp dómsmálaráðherra um breytingar á útlendingalögum í tugi klukkustunda frá því þing kom saman eftir jólahlé í síðustu viku. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir Pírata, sem hafa látið að sér kveða í umræðum um málið, ekki stýra þinginu.
Þegar þessi frétt er skrifuð er málið enn til umræðu á þinginu, og hafa þingmenn Pírata verið duglegir að stíga upp í pontu Alþingis. Bryndís Haraldsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður allsherjar- og menntamálanefndar, segir að málið verði ekki kallað aftur inn í nefnd, líkt og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata, sagði fyrr í dag að ætti að gera. „Píratar stýra ekki þinginu, þeir eru ekki í meirihluta. Meirihlutinn hefur ákveðið að þetta mál fái núna afgreiðslu og við höfum afgreitt það út úr nefndinni. Við höfum líka boðað það að við munum taka mál inn á milli annarrar og þriðju umræðu. Það er ekki óalgengt við svona mál eins og þetta,“ sagði Bryndís í samtali við Heimi Má Pétursson fréttamann í beinni útsendingu í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld. Vafi um stjórnskipulegt gildi Logi Einarsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, sagði í sama viðtali að sér þætti sérkennilegt að boða í upphafi annarrar umræðu breytingar milli umræðna, án þess að vilja taka efnislega umræðu um þær breytingar í þingsal. „Við vonum að minnsta kosti að breytingarnar verði til þess að bæta frumvarpið. Það sem við höfum fyrst og fremst út á það að setja núna er að það er verið að afnema góða reglugerðarbreytingu Þórdísar Kolbrúnar sem verndar börn sem fest hafa hér rætur. Það er verið að skerða þjónustu hjá stórum hópi fólks, taka af því fæði, klæði, heilbrigðisþjónustu undir vissum skilmálum. Síðan hafa náttúrulega komið athugasemdir frá Mannréttindastofnun Háskóla Íslands að það sé vafasamt að þetta geti staðist stjórnarskrá og Mannréttindasáttmála Evrópu,“ sagði Logi. Einhverjir hafi misskilið ákvæði frumvarpsins Bryndís sagði að meirihlutinn hefði ekki ákveðið að gera neinar breytingar, þó það kynni að vera. Slíkar breytingar yrðu þá fyrst og fremst til þess að skýra frumvarpið. „Það er alveg ljóst að sumir hafa misskilið ákveðin ákvæði, þannig að það kann að vera að við þurfum að skýra það frekar, hvort sem er með hreinum breytingatillögum eða frekari umfjöllun í nefndaráliti, sem er auðvitað lögskýringargögn. Hér er ekki verið að brjóta mannréttindi á fólki, hér er einfaldlega verið að auka skilvirkni og ná betur utan um þennan mjög svo mikilvæga málaflokk,“ sagði Bryndís. Aðspurður hvort ekki væru líkur á að umræða um málið í þinginu myndi dragast enn frekar sagðist Logi ekki geta sagt til um það. „Samfylkingin hefur komið málefnalega inn í þessa umræðu. Við erum búin að halda okkar ræður, koma okkar sjónarmiðum á framfæri, leggja fram skýrt nefndarálit. Svo verðum við bara að sjá til,“ sagði Logi.
Alþingi Flóttamenn Hælisleitendur Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Píratar Samfylkingin Sjálfstæðisflokkurinn Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Innlent Svipar til gamalla óupplýstra rána Innlent Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Innlent „Trúði því ekki að þetta væri ég“ Innlent Vilja koma böndum á bókhald trúfélaga Innlent Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Innlent Líkamsárás til rannsóknar eftir nóttina Innlent Stjórnmálamaðurinn Joe Lieberman látinn Erlent Sýknaður af ákæru um að hafa tekið í háls barns Innlent Segir árásarmennina hafa ætlað til Belarús Erlent Fleiri fréttir Svipar til gamalla óupplýstra rána Sýknaður af ákæru um að hafa tekið í háls barns Bjartur skírdagur fram undan í höfuðborginni Líkamsárás til rannsóknar eftir nóttina Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Vilja koma böndum á bókhald trúfélaga Ferðaóðir Íslendingar þyrpast í ferðalög innanlands sem utan Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Týndi vinningshafinn gaf sig fram og græddi níu milljónir Felldu úr gildi friðlýsingu en mátu Mumma ekki vanhæfan Kvöldfréttir Stöðvar 2 Býr á Íslandi en dæmd í sex ára fangelsi í Rússlandi Eldur í Hafnarfirði Haraldur mátti ekki hækka launin en Sigríður ekki heldur lækka þau Læknafélagið mótfallið lögleiðingu dánaraðastoðar „Trúði því ekki að þetta væri ég“ Ekki viss hvort nokkru þurfi að breyta eftir tug milljóna króna þjófnað 546 Grindvíkingar vilja selja Þórkötlu húsið sitt Steinunn Ólína hálfu skrefi frá því að bjóða sig fram Baldur mælist með langmest fylgi Stálu áli í Grindavík en gómaðir af lögreglu Útlit fyrir að gasmengun berist til vesturs og suðvesturs Hæstiréttur bannar síþrotamanni að stunda rekstur Flestir öryggishnappar vegna heimilisofbeldis Fá 82 þúsund fyrir að vinna frá átta til 23 Mikilvægt að upplýsa málið svo aðrir sjái sér ekki leik á borði Helga hellir sér í forsetaslaginn Pallborðið: Eiga læknar að aðstoða fólk við að deyja? Hættuleg gasmengun kemur í veg fyrir opnun Bláa lónsins Sjá meira