Ótrúleg yfirferð Milners hjá Liverpool

James Milner þakkar stuðningsmönnum Liverpool fyrir eftir síðasta heimaleik sinn …
James Milner þakkar stuðningsmönnum Liverpool fyrir eftir síðasta heimaleik sinn með liðinu um síðustu helgi. AFP/Peter Powell

James Milner rær á önnur mið þegar samningur hans við enska knattspyrnufélagið Liverpool rennur sitt skeið í sumar.

Hinn 37 ára gamli Milner vann flesta bikara sem hægt var að vinna á átta árum hjá Liverpool og lét ekki sitt eftir liggja.

Caoimhe O’Neill, íþróttablaðamaður hjá The Athletic, fór yfir feril hans hjá Liverpool í grein og vakti um leið athygli á snertingakorti (e. touch map) Milners á árunum átta, þar sem sést hvar hann snerti boltann í leikjum með liðinu.

Óhætt er að segja að Englendingurinn vinnusami hafi verið út um allt á vellinum hjá þeim rauðklæddu enda fjölhæfur með eindæmum.

Flesta leiki spilaði Milner á miðri miðju en næstflesta í vinstri bakverði. Þá lék hann fjölda leikja í hægri bakverði og lét einnig til sín taka á báðum köntum og sem varnartengiliður.

Vænta má þess að Milner spili sinn síðasta leik með Liverpool þegar liðið heimsækir Southampton í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar næstkomandi sunnudag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert