Innlent

Bara útlendingafrumvarp á dagskrá: „Alveg ljóst að margir hyggjast taka til máls“

Sunna Sæmundsdóttir skrifar
Birgir Ármansson forseti Alþingis
Birgir Ármansson forseti Alþingis vísir/VIlhelm

Útlendingafrumvarp dómsmálaráðherra er eina málið á dagskrá á fyrsta þingfundi ársins í dag og forseti Alþingis gerir jafnvel ráð fyrir að þannig verði það áfram í vikunni. Það stefnir í mikil átök en þingmenn stjórnarandstöðunnar hafa sagt að frumvarpið megi ekki samþykkja óbreytt.

Þingfundum var frestað 16. desember fyrir jól og því er meira en mánuður síðan Alþingi kom síðast saman. Fyrsta og eina mál á dagskrá í dag, fyrir utan óundirbúinn fyrirspurnartíma, er útlendingafrumvarpið. Miðað við það sem á undan er gengið reiknar Birgir Ármansson, forseti Alþingis, með löngum umræðum. Hann segir þurfa að koma í ljós hvort þetta verði eina málið á dagskrá í fleiri daga.

„Við verðum að sjá þetta frá degi til dags en það er alveg ljóst að það eru margir sem hyggjast taka til máls í þessu,“ segir Birgir.

Þetta er líklega hárrétt metið hjá forseta Alþingis þar sem þingmenn Samfylkingar hafa meðal annars sagt að frumvarpinu megi ekki hleypa óbreyttu í gegn og til dæmis talið að ákvæði sem felur í sér að réttur hælisleitenda til ýmissar grunnþjónustu fellur niður þrjátíu dögum eftir synjun feli í sér mannréttindabrot. 

Þá fóru Píratar í málþóf fyrir jól til að koma frumvarpinu af dagskrá. Ekki er því óvarlegt að gera ráð fyrir löngum þingfundum á næstunni.

En Birgir segir fleiri stór mál á dagskrá, sem ýmist er búið að afgreiða úr nefndum eða á lokametrunum þar.

„Eins og tillaga forsætisráðherra um breytingar á þjóðaröyggisstefnu. Og þegar líður á vorið geri ég ráð fyrir að efnahagsumræðan verði stærri hluti af þessu. Það kemur alltaf hér á vorin inn tillaga um breytingar ár fjármálaáætlun og þá er tekist á um meginlínur í sambandi við ríkisfjármálin og efnahagsstjórn.“

Fyrir jól hafi málin þróast þannig að töluvert af stjórnarfrumvörpum hafi enn beðið fyrstu umræðu fyrir þinghlé. Nú sé unnið að því að koma öllu á dagskrá á góðum tíma.

„Eins og jafnan reynum við að dreifa álaginu þannig að það safnist ekki allt saman á síðustu vikum vorsins. Þannig að við sem erum að skipuleggja störf þingsins erum að reyna passa upp á að mál komi nægilega snemma fram til að þau fái viðhlítandi umfjöllun,“ segir Birgir.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×