Breski sjónvarpsmaðurinn Gary Lineker mun ekki stýra knattspyrnuumfjöllun á BBC í dag eins og hann er vanur að gera um helgar. Eftir að hafa náð sáttum í deilu við stjórnendur stöðvarinnar er Lineker orðinn lasinn og raddlaus í þokkabót.
„Eins og glöggir áhorfendur tóku eftir í gær var Gary Lineker í vandræðum með röddina og því miður hefur vandinn bara ágerst í nótt. Alex Scott mun hlaupa í skarðið fyrir hann,“ segir í Twitter fræslu frá BBC.
Due to illness, we've got a line-up change for today's live FA Cup coverage of Brighton v Grimsby on BBC One.
— BBC Sport (@BBCSport) March 19, 2023
As viewers will have noticed yesterday, Gary Lineker was struggling with his voice and unfortunately it has deteriorated overnight.
Alex Scott will be hosting instead. pic.twitter.com/qJGUxqW1oG
Samband Gary Lineker og BBC hefur verið mikið til umræðu eftir að stöðin setti Lineker í tímabundið leyfi vegna ummæla hans um stefnu Íhaldsflokksins í útlendingamálum. Lineker líkti henni við Þýskaland þriðja áratugar síðustu aldar.
Samstarfsmenn Lineker sýndu honum stuðning í verki og neituðu að koma fram í þættinum. Þá greindu margir leikmenn og þjálfarar í ensku úrvalsdeildinni frá því að þeir myndu ekki samþykkja viðtalsbeiðnir frá BBC á meðan Lineker væri í leyfi.
Lineker og BBC sættust þó um síðustu helgi og því má gera ráð fyrir því að Lineker birtist bráðlega aftur á skjám breskra knattspyrnuáhangenda.