Fleiri börn en fæðingartíðnin lækkar Atli Ísleifsson skrifar 9. apríl 2021 09:59 Frá árinu 1932 hefur aldursbundin fæðingartíðni alltaf verið hæst í aldurshópunum 20-24 ára og 25-29 ára en árið 2019 varð sú breyting að fæðingartíðnin reyndist hæst innan aldurshópsins 30-34 ára. Vísir/Vilhelm Fleiri börn fæddust á Íslandi á síðasta ári en á árinu á undan. Fæðingartíðni íslenskra kvenna lækkar hins vegar milli ára og er nú 1,72 börn á hverja konu.
Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar. Þar segir að fjöldi lifandi fæddra barna á Íslandi árið 2020 hafi verið 4.512 sem er fjölgun frá árinu 2019 þegar 4.452 börn fæddust. Alls fæddust 2.385 drengir og 2.127 stúlkur en það jafngildir 1.121 drengjum á móti hverjum 1.000 stúlkum. „Helsti mælikvarði á frjósemi er fjöldi lifandi fæddra barna á ævi hverrar konu. Yfirleitt er miðað við að frjósemi þurfi að vera um 2,1 barn til að viðhalda mannfjölda til lengri tíma litið. Árið 2020 var frjósemi íslenskra kvenna 1,72 börn á ævi hverrar konu og dróst hún örlítið saman frá árinu 2019 en þá var frjósemi 1,75. Aldursbundin fæðingartíðni mest á meðal 30-34 ára Frá árinu 1932 hefur aldursbundin fæðingartíðni alltaf verið hæst í aldurshópunum 20-24 ára og 25-29 ára en árið 2019 varð sú breyting að fæðingartíðnin reyndist hæst innan aldurshópsins 30-34 ára. Það sama á við um árið 2020 en þá fæddust 113,1 börn á hverjar 1.000 konur á aldursbilinu 30-34 ára en 108,6 á aldursbilinu 25-29 ára. Fæðingartíðni mæðra undir tvítugu var í fyrra 4,7 börn á hverjar 1.000 konur. Það er afar lágt í samanburði við tímabilið 1961-1965 þegar hún fór hæst en þá fæddust 84 börn á hverjar 1.000 konur undir tvítugu. Meðalaldur mæðra hefur hækkað jafnt og þétt síðustu áratugi og eignast konur nú sitt fyrsta barn að jafnaði síðar á ævinni en áður. Frá byrjun sjöunda áratugarins og fram yfir 1980 var meðalaldur frumbyrja undir 22 árum en eftir miðjan níunda áratuginn hefur meðalaldur farið hækkandi og var 28,6 ár í fyrra,“ segir í tilkynningunni.
Frjósemi Börn og uppeldi Fjölskyldumál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Krefjast þess að HÍ beiti sér með sama hætti gegn Ísrael og Rússlandi Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Flóttamannastofnun SÞ gerir athugasemdir við útlendingafrumvarpið Innlent Apple biðst afsökunar á auglýsingu fyrir nýjan iPad Erlent Stöðugt landris og hugað að rýmingu Innlent Færeyingar áforma 4.500 króna aðgangseyri á alla ferðamenn Erlent Ísraelsstjórn vígreif þrátt fyrir viðsnúning Bandaríkjamanna Erlent Tveir fluttir á Landspítala eftir árekstur á mótorkrossbrautinni í Mosfellsbæ Innlent Dýrin séu dauð, veik, horuð og í miklum vanhöldum Innlent Fylgi Höllu hrundi eftir kappræðurnar á RÚV Innlent Fleiri fréttir Flóttamannastofnun SÞ gerir athugasemdir við útlendingafrumvarpið Krefjast þess að HÍ beiti sér með sama hætti gegn Ísrael og Rússlandi Tveir fluttir á Landspítala eftir árekstur á mótorkrossbrautinni í Mosfellsbæ Skjálftavirkni aukist í kjölfar gosloka Stöðugt landris og hugað að rýmingu Ræktar 95 tegundir af túlípönum í Mosfellsdal Dýrin séu dauð, veik, horuð og í miklum vanhöldum Ríkisstjórn þurfi að gera meira í þágu vopnahlés Dauð lömb á túni, árás á Rafah og Eurovision Maður sem áreitir börn í Hafnarfirði til rannsóknar Sýknaður af nauðgun en enginn vafi að konan telji á sér brotið Fylgi Höllu hrundi eftir kappræðurnar á RÚV Sinubruni við Hellisskóg á Selfossi 150 þolendum sinnt vegna ofbeldis í nánu sambandi Meintur fjárdráttur mikið áfall fyrir starfsfólk skólans Stóra Svört bar fimm svörtum lömbum Eldgosinu lokið, meintur fjárdráttur og manndrápsrannsókn Eldvörp líkleg næst Rannsókn vegna meints manndráps í Kiðjabergi miðar vel Samanburður við lóðamál olíufélaganna eins „fjarri sannleikanum og hægt er“ Guðríður Hrund skipuð skólameistari MK Eldgosinu lokið eftir 54 daga Leggja aftur fram tillögu um að selja húsnæði MÍR Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Býður þjóðarhöll Færeyja undir landsleiki Íslands Reykjavík lækkar gjaldskrár vegna þjónustu við barnafjölskyldur Fylgjast grannt með gangi mála Margt bendi til þess að gosinu sé lokið María Sigrún birtir tölvupósta Dags „Á endanum snýst þetta allt um peninga“ Sjá meira