Ætla að búa saman í Nornahúsi einungis ætluðu konum á besta aldri Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 18. júní 2021 20:00 Margrét Ágústsdóttir ætlar að búa í húsinu ásamt vinkonum sínum. Arnar Halldórsson Fimm vinkonur ætla að búa saman í svokölluðu Nornahúsi sem mun rísa í stað hússins sem brann á Bræðraborgarstíg í fyrra. 25 íbúðir verða í húsinu og geta því fleiri bæst í hópinn en íbúðirnar verða einungis seldar konum yfir sextugt. „
Þann áttunda júní var hafist handa við að rífa niður brunarústirnar að Bræðraborgarstíg 1. Nú tíu dögum seinna er svæðið autt en hér ætla nokkrar konur að búa saman og lifa eftir svokallaðri BabaYaga hugmyndafræði.“ Nútíma kommúna fyrir konur sem aðhyllast femínisma Hugmyndafræðin er nokkurs konar nútíma kommúna sem gerir fólki kleift að búa l engur heima hjá sér í félagsskapi við aðra. Margrét og fjórar vinkonur hennar tóku sig saman og höfðu samband við Þorpið vistfélag sem mun reisa húsnæði sem þær ætla að búa saman í á byggingarreitnum en húsið kalla þær Nornahús. Húsnæðið er eingöngu ætlað konum yfir sextugt. Ekki hjúkrunarheimili „Hugmyndafræðin snýst ekki um að veitum hver annarri hjúkrunarþjónustu heldur stuðning, andlegan stuðning og jú hjálp lengi framan af. Þetta getur alveg eins hentað körlum eða vinahópum, bara hverjum sem er sem vilja taka sig saman og styðja hvert annað þegar árin færast yfir,“ sagði Margrét Ágústsdóttir, framkvæmdastjóri. Í húsinu verða 25 litlar íbúðir, allar með eldunaraðstöðu. Stór sameign verður í húsinu með sameiginlegu eldhúsi, leikfimissal og garði. „Síðan er ætlunin að hafa á jarðhæðinni kannski kaffihús, handverksbúð. Eitthvað til að styðja við nærumhverfið.“ Segir alla geta farið sömu leið Margrét hlakkar mest til þess að tína grænmeti í garðinum með vinkonum sínum í femínisku og umhverfisvænu samfélagi. „Geta þá farið og hitt stelpurnar og kjaftað, eða getað farið niður í garð og farið í pottinn.“ Þær stefna að því að flytja inn innan þriggja ára. Að Margréti vitandi eru þær vinkonurnar fyrsti hópurinn hérlendis til að taka sig saman og stofna kommúnu sambærilega þessari, en hún ítrekar að allir geti farið þessa leið. „Þetta er algjörlega mögulegt fyrir alla hópa að gera svona. Taka sig saman, finna sér byggingaraðila, finna pláss fyrir bygginguna og fara af stað,“ sagði Margrét.
Húsnæðismál Félagsmál Reykjavík Bruni á Bræðraborgarstíg Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Óljóst hvort þyrlan sé fundin Erlent Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Innlent Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Fólk er bara að bíða“ Innlent Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Erlent Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Innlent Íranski forsetinn í óljósu þyrluslysi Erlent Segir Helgu fara með rangt mál Innlent Stuðningur Katrínar við sóttvarnarlækni sjálfsagður Innlent Fleiri fréttir Frambjóðendur geti nýtt sér skoðanakannanir Glæsilegt fuglasafn í veiðihúsinu við Hítará Varasamt að ferðast á sumardekkjum í kvöld Óttast um afdrif Íransforseta og ferðaveðrið í beinni Stuðningur Katrínar við sóttvarnarlækni sjálfsagður „Fólk er bara að bíða“ Tveir prestar og tveir djáknar vígðir í Skálholti Lægð yfir landinu og snjókoma fyrir norðan Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Aukin skjálftavirkni og erjur um Erfðagreiningu Örlítil aukning í skjálftavirkni undir Svartsengi Forsetakosningar, mansal og samningar Reykjavíkur við olíufélögin Segir Helgu fara með rangt mál Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni Sjá meira