Fyrrverandi forsætisráðherra Noregs fallinn frá Kolbeinn Tumi Daðason og Atli Ísleifsson skrifa 6. desember 2021 16:27 Kåre Willoch í opinberri heimsókn í Bandaríkjunum árið 1983. Wikimedia Commons Kåre Willoch, fyrrverandi forsætisráðherra Noregs og leiðtogi Hægriflokksins, er látinn 93 ára gamall. Flokkurinn greinir frá í tilkynningu þar sem fram kemur að hann hafi lognast út af á heimili sínu í hverfinu Ullern í Osló.
Erna Solberg, fyrrverandi forsætisráðherra og flokkssystir Willoch, segir í tilkynningu að hugur flokksmanna sé hjá Anne-Marie konu hans, börnum, barnabörnum og öðrum nákomnum. Willoch var forsætisráðherra Noregs frá 1981 til 1986 og leiðtogi Hægriflokksins í ellefu ár þar á undan. Þá gegndi hann einnig embætti viðskiptaráðherra. Willoch er einn áhrifamesti stjórnmálamaður í sögu Noregs, var virkur í stjórnmálum í rúma sex áratugi, og koma á ýmsum málum sem breyttu norsku samfélagi. Hann var hagfræðingur að mennt og starfaði innan skipaiðnaðarins áður en hann tók sæti í borgarstjórn Oslóar árið 1952. Hann tók svo sæti á norska þinginu fyrir Hægriflokkinn árið 1958 og átti eftir að eiga þar sæti fram til ársins 1989. Hann tók fyrst við ráðherraembætti í samsteypustjórn Johns Lyng árið 1963. Kåre Willoch og Gro Harlem Brundtland áttu lengi í baráttu um norska kjósendur á áttunda og níunda áratugnum.Getty Árið 1981 vann Høyre mikinn sigur í þingkosningunum og tók Willoch þá við embætti forsætisráðherra af Gro Harlem Brundtland og fór fyrir fyrstu hreinu hægristjórn landsins frá árinu 1928. Í forsætisráðherratíð Willochs braut hann upp ríkiseinokunina á fjölmiðlamarkaði, losaði um reglur á húsnæðismarkaði og opnunartími verslana varð frjálsari. Brundtland og Verkamannaflokkurinn höfðu þó betur gegn Willoch og Høyre i kosningunum 1986 og tók því Brundland aftur við forsætisráðherraembættinu. Eftir að Willoch lét af þingmennsku tók han við stöðu fylkismanns í Osló og Akershus og gegndi því til ársins 1998. Willoch lætur eftir sig eiginkonuna Anne Marie og dótturina Cecilie. Jonas Gahr Störe, núverandi forsætisráðherra Noregs minnist Willoch á samfélagsmiðlum og segir hann hafa verið atkvæðamikinn og snjallan stjórnmálamann.
Noregur Andlát Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Hjól undan strætó braut svalir á annarri hæð Innlent Meint framhjáhald og sambandsslit í stunguárásarmáli Innlent „Kastljós á ekki að vera Staksteinar“ Innlent Neyðast óvænt til að tæma laugina Innlent Vildi heimsækja krabbameinssjúka móður sína en vísað úr landi Innlent Halla Hrund áfram efst Innlent Skúli Tómas sinnir sjúklingum af og til Innlent Ákvörðun Seðlabankans sé óskiljanleg Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Þetta getur ekki annað en endað með algjörum ósköpum“ Innlent Fleiri fréttir Grænlendingar segja sig úr Norðurlandaráði Skýrustu merkin um lofthjúp um bergreikistjörnu til þessa Enn og aftur tafir á málaferlum gegn Trump Umfangsmestu árásir Rússa í nokkrar vikur Trump blótaði þegar Daniels lýsti meintu samneyti þeirra Hrina árása á þýska stjórnmálamenn veldur áhyggjum Um 800.000 Evrópubúar taldir hafa fallið fyrir kínverskri svikamyllu Bandaríkjamenn stöðvuðu vopnasendingu til Ísrael í síðustu viku Annar hvirfilbylurinn í Oklahoma á rúmum mánuði Segir Bandaríkjamenn þurfa að þrýsta á Ísraela Skotárás við heimili Drake Stormy Daniels í dómsal með Trump Lífverðir Selenskís sakaðir um að skipuleggja banatilræði Reynt að siga lögreglu á vitni í málinu gegn Trump Fundu hlerunarbúnað í fundarherbergi ráðherra Pútín hefur fimmta kjörtímabilið með meiri völd en áður Sagðist saklaus af því að hafa drepið með eitruðum sveppum Verðhækkanir á döner-kebab eitt helsta áhyggjuefni Þjóðverja Geimskoti Starliner var frestað í nótt Segja nýjar reglur um merkingar blekkingarleik laxeldisfyrirtækja Ísraelsmenn í aðgerðum í Rafah og taka yfir landamærastöðina Tillagan „langt frá“ grundvallarkröfum Ísraela Ferðamannastaðir Færeyja lokaðir vegna viðhalds Bein útsending: Starliner ber geimfara til geimstöðvarinnar Hamas samþykkir vopnahléstillögu Áttatíu og tveggja ára Bernie vill sex ár í viðbót Ávítti Trump aftur og ítrekaði fangelsishótun Reiðir yfir ummælum Macrons og halda æfingar með kjarnorkuvopn Sökktu rússneskum hraðbát með sjálfsprengidróna Verður næsti formaður Skoska þjóðarflokksins Sjá meira