Innlent

Segja friðlandið orðið að óskiljanlegri kerfisvitleysu

Kristján Már Unnarsson skrifar
Þau Sveinn Viðarsson og Kristín Ósk Matthíasdóttir eru fiskeldisbændur á Þverá í Vatnsfirði.
Þau Sveinn Viðarsson og Kristín Ósk Matthíasdóttir eru fiskeldisbændur á Þverá í Vatnsfirði. Egill Aðalsteinsson

Barnafjölskylda sem flutti á fiskeldisbýli á Barðaströnd segir þungt í vöfum að vera innan friðlands Vatnsfjarðar. Í neyð sinni ákváðu þau á endanum að byggja íbúðarhús í óleyfi á bakka eldistjarnar fremur en að hírast áfram með börnin í örlitlu pallhýsi.

Þau Kristín Ósk Matthíasdóttir og Sveinn Viðarsson fluttu af Suðurlandi fyrir sex árum til að taka við býli á Barðaströnd þar sem jarðhiti er nýttur til að ala bleikju. Þau Svein og Kristínu óraði samt ekki fyrir þeim hindrunum sem fylgdu því að jörðin er innan friðlands Vatnsfjarðar.

-En er þá allt þyngra í vöfum af því að þetta er friðland?

„Já, ekki spurning,“ svarar Kristín í fréttum Stöðvar 2.

Nýja íbúðarhúsið byggðu þau framan við eldishúsið á bakka eldistjarnar. Séð inn Vatnsfjörð í átt að Flókalundi.Egill Aðalsteinsson

„Það er búið að gera þetta að kerfisvitleysu. Þetta er orðið rosalega þungt í vöfum að reyna að reka eitthvað í dag í svona umhverfi. Kerfið er orðið svo flókið og snúið að við föttum það ekki, - þekkjum ekki orðið hvernig þetta virkar sjálf. Við erum búin að búa til svo mikla kerfisvitleysu að við skiljum þetta ekki,“ segir Sveinn.

Þau leigðu fyrst íbúðarhús í sveitinni en þegar eigendurnir þurftu það undir eigin fjölskyldu lentu þau á hrakhólum þar sem ekkert annað hús var á lausu í sveitinni. Þau neyddust til að búa í tíu fermetra pallhýsi og vildu því sjálf byggja.

„Við vorum búin að sækja og sækja um leyfi. Það gengur ekki með tvö börn að vera í camper í tíu mánuði, sko. Þetta var ekki forsvaranlegt, sko,“ segir Kristín.

„Við neituðum bara að gefast upp og byggðum húsið,“ segir Sveinn.

Leyfið fékkst svo loksins síðastliðinn föstudag.

Horft út Vatnsfjörð í átt að Brjánslæk.Egill Aðalsteinsson

Sveinn segist samt ekki ætla að leggjast gegn því að svæðið verði gert að þjóðgarði, eins og núna er áformað.

„Mér er svo sem alveg sama hvað þeir gera. Ég hef ekkert á móti þessu. Þetta er bara fínt. Ég held að það verði bara gaman að þessu. Bara meiri áskorun – áskorun um að hafa snyrtilegt í kringum sig,“ segir Sveinn.

Í þættinum Um land allt á Stöð 2 í kvöld var fjallað um Barðaströnd en þar hefur börnum snarfjölgað.

„Það var eitt þegar við komum. Nú eru þau tólf,“ segir Kristín.

Hér má sjá frétt Stöðvar 2:


Tengdar fréttir

Byggðin á Barðaströnd nær vopnum sínum á ný

Það blés ekki byrlega fyrir samfélaginu á Barðaströnd fyrir fimm árum þegar bæjarstjórn Vesturbyggðar tilkynnti að grunnskóla sveitarinnar á Birkimel yrði lokað vegna barnafækkunar. Þá stefndi í að einungis tvö börn yrðu í sveitinni á skólaaldri.

Barðstrendingar fá ekki skólann sinn opnaðan

Bæjarstjóri Vesturbyggðar segir ekki standa til að opna aftur grunnskólann á Barðaströnd. Sveitarfélagið skoði hins vegar að bjóða foreldrum yngstu barnanna upp á þjónustu dagforeldra í sveitinni svo ekki þurfi að aka þeim yfir fjallveg.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×