Frumherji endurskoðar eignarhaldið Eiður Þór Árnason skrifar 3. desember 2021 14:23 Frumherji er með 32 starfsstöðvar víðs vegar um landið. Frumherji Orri Hlöðversson, framkvæmdastjóri Frumherja, og Andri Gunnarsson stjórnarformaður keyptu á dögunum út aðra hluthafa félagsins.
Seljendurnir eru Fannar Ólafsson, Þórður Kolbeinsson og Kristján Grétarsson sem áttu hver um sig fjórðungshlut í eignarhaldsfélaginu Tiberius ehf. Félagið fór með 95% hlutafjár í Frumherja á móti 5% hlut Orra. Fjórmenningarnir Andri, Fannar, Þórður og Kristján keyptu fyrirtækið af Íslandsbanka árið 2016. Eftir viðskiptin fer Andri með 80% hlut í Frumherja og Orri 20% en með í kaupunum fylgir fasteignafélagið Fastherji ehf. Andri segir í samtali við Vísi að gengið hafi verið frá kaupunum á miðvikudag sem hafi átt sér fremur skamman aðdraganda. Hann bætir við að rekstur fyrirtækisins hafi gengið vel á seinustu árum og eigendurnir séu bjartsýnir á framtíðina. Kaupverð er trúnaðarmál. Tekjusamdráttur í samkomubanni Hagnaður Frumherja hf. nam 30,4 milljónum króna í fyrra samkvæmt ársreikningi. Tekjur drógust saman um 6,31% milli ára og námu um 1,43 milljörðum króna. Bókfært eigið fé félagsins var 130,42 milljónir króna í árslok 2020 og eiginfjárhlutfall 12%. Veruleg óvissa var á tímabili um hvaða áhrif kórónuveirufaraldurinn myndi hafa á rekstur Frumherja árið 2020 en að endingu urðu neikvæð áhrif minni en óttast var af framan af. Um hundrað manns vinna hjá Frumherja á 32 starfstöðvum víðs vegar um landið. Veitir fyrirtækið meðal annars þjónustu á sviði bifreiða-, fasteigna- og skipaskoðana, og sér um framkvæmd allra ökuprófa á landinu. Þá rekur Frumherji prófunarstofu fyrir löggildingu mælitækja á borð við vogir, dælur, raforkumæla og vatnsmæla. Frumherji varð til árið 1997 við uppskiptingu Bifreiðaskoðunar Íslands. Bifreiðaskoðunarhlutinn varð að Frumherja en Skráningarstofan hf. sem varð síðar að Samgöngustofu tók við rekstri ökutækjaskrár og stjórnsýsluhlutverki frá Bifreiðaskoðun Íslands. Frumherji var upphaflega í helmingseigu íslenska ríkisins líkt og Bifreiðaskoðun Íslands en stjórnvöld seldu síðar sinn hlut í fyrirtækinu.
Kaup og sala fyrirtækja Bílar Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Há laun og dýr bjór séu vandamál ÁTVR Viðskipti innlent „Svo hefst kapphlaupið í það hver er fyrstur að ná sturtunni!“ Atvinnulíf Dagar Workplace eru taldir Viðskipti erlent Fyrirtæki hvött til að halda upp á daginn í dag og gera sér dagamun Atvinnulíf Rauf sátt vegna Max-málsins og gæti átt yfir höfði sér refsimál Viðskipti erlent Fyrsta flugi Icelandair til Pittsburgh fagnað Viðskipti Hnífjöfn atkvæðagreiðsla sem gæti endað fyrir dómi Viðskipti innlent Base parking gjaldþrota Viðskipti innlent Segir arðgreiðslur ÁTVR hafa lækkað um 400 milljónir vegna netsölu Viðskipti innlent VÍS gefið yfir 1.100 fjölskyldum barnabílspegla í sængurgjöf Samstarf Fleiri fréttir Há laun og dýr bjór séu vandamál ÁTVR Hnífjöfn atkvæðagreiðsla sem gæti endað fyrir dómi Segir arðgreiðslur ÁTVR hafa lækkað um 400 milljónir vegna netsölu Fóru í fyrsta flugið milli Calgary og Keflavíkurflugvallar Segir að Play sé og verði áfram með höfuðstöðvar á Íslandi Guðmundur tilnefndur til Evrópsku nýsköpunarverðlaunanna 2024 Forstjóri Play íhugar að fljúga frekar til Íslands en frá Base parking gjaldþrota Endurkjörinn formaður og fimm koma ný inn í stjórn Þjónusturof hjá alþjóðlegum birgja Samkaup, Heimkaup og Orkan hefja samrunaviðræður Stefna á opnun fyrsta skammtíma raforkumarkaðarins á næsta ári Bein útsending frá Nýsköpunarviku Sparisjóður hagnaðist um 205 milljónir króna Starfsfólk fær 150 milljónir í hlutabréfum Magnús eignast Latabæ á nýjan leik Ráðin framkvæmdastjóri Rue de Net Almennt útboð Íslandshótela hefst á morgun Ætlar að gera Grillhúsið að heitasta staðnum í Borgarnesi Landsvirkjun selur í fyrsta skipti í raforkukauphöll Ráðin forstöðukona Nýrra orkukosta Eigendur TGI Fridays kaupa Grillhúsið Freyr ráðinn til Eflingar Tilnefndur sem besti leikur fyrir snjalltæki á Norðurlöndum MAST olli Brúneggjum tjóni en RÚV sýknað Tilboðið afturkallað og Eik öðlast frelsi til athafna á ný Brottfarirnar í apríl nokkuð færri en á síðasta ári Engin hópuppsögn í apríl Fer frá Deloitte til Góðra samskipta Mun stýra tæknisviði Carbfix Sjá meira