Ræddi jafnréttismál á alþjóðlegri ráðstefnu

Katrín ræðir við Justin Trudeau, forsætisráðherra Kanada.
Katrín ræðir við Justin Trudeau, forsætisráðherra Kanada. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra tók þátt í opnunarviðburði alþjóðlegu jafnréttisráðstefnunnar SHE 2021, sem er haldin í Noregi. Þema ráðstefnunnar í ár er „Jafnrétti skiptir máli“.

Forsætisráðherra tók þátt í pallborðsumræðum með Ernu Solberg, forsætisráðherra Noregs, Justin Trudeau, forsætisráðherra Kanada, og Sadiq Khan, borgarstjóra London. Þau ræddu meðal annars áhrif heimsfaraldursins á stöðu kvenna og jafnréttismál í heiminum og hlutverk leiðtoga við þær aðstæður sem skapast hafa vegna heimsfaraldursins, að því er segir í tilkynningu.

Forsætisráðherra lagði áherslu á mikilvægi þess að jafnréttismál væru höfð að leiðarljósi þegar kæmi að því að byggja upp hagkerfi heimsins eftir faraldurinn. Hún benti á að faraldurinn hefði afhjúpað veikleika í velferðarkerfum ýmissa landa og um leið minnt á mikilvægi slíkra innviða.

„Í þessum faraldri höfum við séð hversu mikilvæg hin hefðbundnu kvennastörf eru, bæði í framlínunni í heilbrigðis- og menntakerfinu og hin ólaunuðu störf sem eru fremur falin inni á heimilunum. Í þessu samhengi þurfum við að ræða opinskátt hvernig við sem samfélag metum þessi störf sem hafa sýnt mikilvægi sitt sem aldrei fyrr í þessum faraldri,“ sagði Katrín, að því er kemur fram í tilkynningunni.

Í opnunarviðburðinum tóku einnig þátt Hillary Clinton, fyrrverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og dóttir hennar, Chelsea Clinton, Helen Clark, fyrrverandi forsætisráðherra Nýja-Sjálands og Ellen Johnson Sirleaf, fyrrverandi forseti Líberíu.

SHE 2021 stendur fyrir fjölmörgum jafnréttistengdum viðburðum dagana 5.-18. mars sem hægt er að fylgjast með hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert