Brynjólfur með veiruna og ekki með

Brynjólfur Willumsson í leik með U21 árs landsliðinu.
Brynjólfur Willumsson í leik með U21 árs landsliðinu. AFP

Brynjólfur Andersen Willumsson verður ekki með íslenska landsliðinu er það mætir Úganda og Suður-Kóreu í vináttuleikjum þar sem hann er með kórónuveiruna. Ómar Smárason, upplýsingafulltrúi KSÍ, staðfesti í dag.

Brynjólfur er í einangrun á hóteli liðsins í  Antalya í Tyrklandi þar sem leikirnir fara fram. Mun sóknarmaðurinn því ekki spila sinn fyrsta A-landsleik í verkefninu en hann á 18 leiki með U21 árs landsliðinu.

Ísland leikur við Úganda á miðvikudag klukkan 14 og Suður-Kóreu á laugardag klukkan 11.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert