IWF kærir MAST til ÚU Jakob Bjarnar skrifar 23. febrúar 2021 13:07 The Icelandic Wildlife Fund (IWF) hefur kært Matvælastofnun (MAST) til úrskurðarnefndar um upplýsingamál (ÚU) og krefst þess að nefndin hlutist til um að MAST birti upplýsingar um eftirlit með sjókvíaeldisfyrirtækjum í samræmi við lög og reglur. „
Við hjá IWF fögnum því að úrskurðarnefndin hefur brugðist hratt við erindi okkar, en staðan er þó sú að þann 2. og 3. mars renna út umsagnafrestir, hjá MAST annars vegar og Umhverfisstofnun hins vegar, vegna breytinga á leyfum Fiskeldis Austfjarða án þess að þessar lögbundnu upplýsingar séu aðgengilegar,“ segir Jón Kaldal talsmaður Íslenska náttúruverndarsjóðsins eða The Icelandic Wildlife Fund (IWF). ÚU hefur tekið málið til meðferðar og kallað eftir gögnum frá aðilum máls. Ný reglugerð um fiskeldi gildi 1. júní 2020 en frá þeim tíma hefur MAST aldrei birt þær upplýsingar sem stofnuninni er skylt að gera. Reglugerðin byggir á lögum sem voru samþykkt á Alþingi 2019 og tóku gildi 1. janúar 2020. Málið er liður í langvarandi baráttu IWF við fiskeldisfyrirtækin en ítrekað hafa samtökin bent á þá umhverfisvá sem þeir telja að fylgi einkum sjókvíaeldinu. Ber lögum samkvæmt að birta upplýsingar „Við höfum ítrekað óskað eftir því við MAST að fá aðgang að þessum upplýsingum,“ segir Jón Kaldal, talsmaður IWF. „Það er fráleit staða að þurfa að leita til úrskurðarnefndarinnar til að fá aðgang að upplýsingum sem MAST er skylt að birta. Sjókvíaeldi á laxi er mengandi iðnaður og þetta eru mikilvægar upplýsingar um þessa starfsemi.“ Meðal þeirra upplýsinga sem IWF hefur óskað eftir eru skýrslur með lýsingu á því sem fram kom í nýjustu eftirlitsheimsóknum MAST til þeirra fyrirtækja sem stunda sjókvíaeldi hér við land og hvort starfsemin sé í samræmi við rekstrarleyfisskilyrði, en samkvæmt reglugerðinni skal Matvælastofnun „leitast við að birta ofangreint innan tveggja mánaða frá eftirlitsheimsókn.“ Og niðurstöðum vöktunar á viðkomu sníkjudýra og MAST skal birta innan tuttugu daga eftir skil frá sjókvíaeldisfyrirtækjunum samkvæmt reglugerðinni. Segir um óásættanleg lausatök að ræða Jón bendir á að í greinargerð sem fylgdi með drögum að frumvarpinu um breytingar á lagaákvæðum um fiskeldi, og var samþykkt á Alþingi í júní 2019, var sérstakur kafli um bætt eftirlit og upplýsingaskyldu opinberra stofnana um sjókvíaeldisiðnaðinn. Þar kemur fram að því sé ætlað að ætlað að leggja grunn að öflugu og skilvirku eftirliti með fiskeldi. Og krafa gerð um aukna upplýsingagjöf og betra aðgengi almennings að upplýsingum sem tengjast fiskeldi. Jón segir að MAST hafi þessi fyrirmæli að engu. „Þetta ástand er í raun lýsandi fyrir óásættanleg lausatök opinberra stofnana með þessum mengandi iðnaði sem skaðar umhverfið og lífríkið.“
Stjórnsýsla Fiskeldi Félagasamtök Lax Umhverfismál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Meinleysisgrey sem séu lífríkinu afar mikilvæg Innlent Fico ekki talinn í lífshættu Erlent Um 800 börn bíða eftir leikskólaplássi í Reykjavík Innlent Sjö smáskjálftar við Sýlingarfell og Veðurstofan fylgist vel með Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Þetta reddast“ voru fyrstu orðin sem hann lærði Innlent Segir seinlæti First Water stórfurðulegt Innlent „Heill vinnustaður er dreginn sundur og saman í háði“ Innlent Gjörbreytt bílpróf en segja hvergi slegið af kröfum Innlent Lögreglan þurfi nauðsynlega auknar rannsóknarheimildir Innlent Fleiri fréttir Um 800 börn bíða eftir leikskólaplássi í Reykjavík Meinleysisgrey sem séu lífríkinu afar mikilvæg Sjö smáskjálftar við Sýlingarfell og Veðurstofan fylgist vel með „Þetta reddast“ voru fyrstu orðin sem hann lærði Lögreglan þurfi nauðsynlega auknar rannsóknarheimildir Mikill meirihluti hlynntur dánaraðstoð Fátt ef nokkuð stöðvar eldislaxinn Segir seinlæti First Water stórfurðulegt Hæstiréttur segir tíma í flugvél vera vinnutíma Vill ræða brottvísun til Nígeríu í nefnd: „Skelfileg ásýnd á þessu máli“ Gjörbreytt bílpróf en segja hvergi slegið af kröfum Fagna framfaraskrefi ráðherra en vilja afnema tilvísanakerfið Þórdís í sendinefnd til Georgíu vegna umdeildra laga Maðurinn fannst heill á húfi Hundaskítur fyrir utan kosningamiðstöð Baldurs vekur spurningar Skilur uppnám skólasamfélagsins í Laugardal en horfa þurfi á staðreyndir Bréf Eggerts kom flatt upp á bæjarstjórnarmenn Flugvél Icelandair þurfti að snúa við Píratar hafa áhyggjur af skorti á eftirliti með lögreglu Úr 256 pakkningum á mánuði upp í sex þúsund Útlendingalög, tilvísanir og skólabygging í Laugardal Fólk setji símana á akstursstillingu til að koma í veg fyrir slys Hundrað milljarða fjárfesting í uppnámi Beðnir um að senda börnin sín með net vegna flugnafaraldurs „Nú verður þú bara að spyrja Bjarna“ Halla þótti standa sig best Ísland hástökkvari á Regnbogakortinu Stefni í endurtekningu á síðasta vori Nýir fatasöfnunargámar á leið til landsins Forsetaframbjóðendur mæta í kappræður á Stöð 2 og Vísi Sjá meira