Jón Gnarr forsetaframbjóðandi sat fyrir svörum í nýjasta þætti Spursmála undir stjórn Stefáns Einars Stefánssonar.
Í þættinum var Jóni gert að svara krefjandi spurningum er varða fortíð hans og bakgrunns sem einn vinsælasti grínisti landsins í samhengi við framboð hans til embættis forseta Íslands.
Einnig var knúið á um svör hvers konar hugsjónir Jón hefur á forsetaembættinu og með hvaða hætti hann kemur til með að beita sér í því verði hann kjörinn.
Fjölbreytt fréttavika er senn á enda. Fjölmiðlamaðurinn Frosti Logason og Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins mættu í settið til að fara yfir stærstu fréttamálin sem upp komu í vikunni.
Ber þar helst að nefna Kveiks hneykslið svokallaða þegar upp kom að fréttaskýring Maríu Sigrúnar Hilmarsdóttur fjölmiðlakonu var tekin af dagskrá. Í fréttaskýringunni var fjallað ítarlega um umdeilda samninga borgarinnar við olíufélögin um bensínstöðvalóðir innan borgarlandsins.
Þá kom ákvörðun peningastefnunefndar mörgum í opna skjöldu á dögunum með ákvörðun sinni um að halda stýrivöxtum óbreyttum. Vill svo til að almenningur er hættur að botna í stöðunni.
Þetta og meira til var til umræðu í Spursmálum í dag.