Gloppa í aukapakkanum Happy Home Paradise í tölvuleiknum Animal Crossing: New Horizons leiðir til þess að þorpsbúar rölta um naktir og enginn veit afhverju.
Gloppan virðist eiga sér stað í kaffihúsi Happy Home Paradise og eftir að leikmenn uppgvötuðu þetta fóru margir með fréttirnar í samfélagsmiðlana til þess að deila sínum uppáhalds „nektarmyndum“, sem samt eru algjörlega skaðlausar, - enda eru það krúttleg og tölvugerð dýr sem spiluð eru í tölvuleiknum.