Innlent

Ætlar að færa eftirlit með pósti á Sauðárkrók

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Sigurður Ingi Jóhannsson er samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra auk þess að vera formaður Framsóknarflokksins.
Sigurður Ingi Jóhannsson er samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra auk þess að vera formaður Framsóknarflokksins. Vísir/Vilhelm

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitastjórnarráðherra, hefur í hyggju að Byggðastofnun taki yfir póstmál, hlutverk sem Póst- og fjarskiptastofnun hefur haft með að gera hingað til. Markmiðið er að tryggja jafnan rétt landsmanna til alþjónustu póstsins.

Drög að frumvarpi ráðherra hefur verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Í tilkynningu á vef ráðuneytisins segir að um sé að ræða breytingar á ýmsum lögum vegna tilfærslu póstmála frá Póst- og fjarskiptastofnun til Byggðastofnunar. Frestur til að senda inn umsögn rennur út 4. nóvember.

Póst- og fjarskiptastofnun er staðsett á Suðurlandsbraut í Reykjavík og hefur umsjón og eftirlit með framkvæmd fjarskipta, netöryggis og póstmála hér á landi. Byggðastofnun er á Sauðármýri á Sauðárkróki. Hlutverk Byggðastofnunar er að efla byggð og atvinnulíf með sérstakri áherslu á jöfnun tækifæra allra landsmanna til atvinnu og búsetu.

„Með tilfærslu póstmála frá Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) til Byggðastofnunar er leitast við að tryggja jafnan rétt landsmanna til alþjónustu póstsins, sem lýst er í lögum um póstþjónustu. Ýmis rök mæla með því að Byggðastofnun taki að sér verkefni póstmála, m.a. við að samhæfa betur byggðasjónarmið og póstmál,“ segir í tilkynningunni.

Frumvarpið sé hluti af heildaryfirferð á lagaumhverfi PFS en stefnt er að því að það verði lagt fram samhliða frumvarpi til nýrra heildarlaga um Póst- og fjarskiptastofnun. Frumvarpið sé þó byggt upp með þeim hætti að það geti staðið sjálfstætt, þ.e. óháð fyrirhuguðum breytingum á lögum um Póst- og fjarskiptastofnun.

„Tilgangur frumvarpsins, sem samið var í samvinnu við PFS og Byggðastofnun, er að mæla fyrir um lagabreytingar sem nauðsynlegar eru til að færa stjórnsýslu og eftirlit með póstþjónustu frá PFS til Byggðastofnunar. Markmiðið er að Byggðastofnun hafi sömu heimildir og skyldur og PFS fyrir tilfærsluna og að áfram verði tryggð hagkvæm, skilvirk og áreiðanleg póstþjónusta um land allt og til og frá landinu.“



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×