Öll sýni á Grund reyndust neikvæð

Fram kom í gær að starfsmaður hjúkrunarheimilisins hafi greinst smitaður …
Fram kom í gær að starfsmaður hjúkrunarheimilisins hafi greinst smitaður af veirunni og var þá ráðist í að skima allt starfsfólk og íbúa. mbl.is/Ómar Óskarsson

Öll Covid-19-sýni sem voru tekin af starfsmönnum og íbúum hjúkrunarheimilisins Grundar voru neikvæð. Þetta staðfestir Sigríður Sigurðardóttir, sviðsstjóri fræðslu- og gæðadeildar hjúkrunarheimilisins, í samtali við mbl.is.

Fram kom í gær að starfsmaður hjúkrunarheimilisins hefði greinst smitaður af veirunni og var þá ráðist í að skima allt starfsfólk og íbúa. Starfsmaðurinn hafði síðast verið í vinnu á fimmtudagsmorgun.

Sigríður segir fréttirnar mjög gleðilegar og mikinn létti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert