Hafnar því að hún harmi skipan þjóðminjavarðar Kristín Ólafsdóttir skrifar 27. september 2022 12:55 Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra. Vísir/vilhelm Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra segist ekki harma skipan þjóðminjavarðar, líkt og haldið var fram í Fréttablaðinu í morgun. Hins vegar hefði mátt auglýsa stöðuna til að halda sátt um skipanina. Ekki standi til að draga hana til baka.
Fréttablaðið ræddi við Ólöfu Gerði Sigfúsdóttur formann Íslandsdeildar alþjóðaráðs safna í forsíðufrétt sinni morgun. Ólöf var gestur safnaþings í síðustu viku, þar sem ráðherra tók til máls, en fram kom í frétt Fréttablaðsins að gesti hefði sett hljóða þegar Lilja hefði „tekið U-beygju“ í afstöðu sinni til umdeildrar skipunar Hörpu Þórsdóttur sem þjóðminjavarðar - og sagst harma skipanina. Fréttastofa bar þetta undir ráðherra að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun. Því var slegið upp í frétt Fréttablaðsins að þú hefðir harmað þessa skipan, er það rétt? „Ég harma ekki skipanina sem slíka en við hefðum getað auglýst til að það væri meiri sátt um þessa skipan,“ segir Lilja. Og það stendur ekki til að draga þetta til baka? „Nei, það stendur ekki til.“ Finnst þér að þú hefðir mátt gera þetta [skipanina] öðruvísi, fyrir utan þetta [að auglýsa ekki stöðuna]? „Nei, það er skýr heimild í lögum og svona flutningur hefur tíðkast. En hins vegar er það þannig að þetta kom ekki vel við mitt safnafólk. Mér er mjög annt um það og samskipti mín við þau. Ráðherra verður auðvitað að skoða hvað getum við gert til að bæta stöðuna, búa til traust. Við eigum í mjög góðu og uppbyggilegu samtali og samvinnu um næstu skref,“ segir Lilja. Ráðstafanir til að efla þetta traust hafi meðal annars verið ræddar á áðurnefndum fundi með safnafólki. „Eitt af því sem ég nefni er skipunartími embættismanna. Hámark í Listasafni Íslands er tíu ár. Mér finnst koma vel til greina að skoða þetta fyrir Þjóðminjasafnið og Náttúruminjasafnið. Að samræma skipunartíma. Þá held ég að þessi óánægja hefði ekki verið svona mikil,“ segir Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra.
Deilur um skipun þjóðminjavarðar Söfn Stjórnsýsla Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Tengdar fréttir Segir Lilju harma skipun þjóðminjavarðar en ekki geta dregið hana til baka Ólöf Gerður Sigfúsdóttir, formaður Íslandsdeildar International Council of Museums (ICOM), segir Lilju Alfreðsdóttur menningarmálaráðherra hafa harmað skipun þjóðminjavarðar án auglýsingar á Safnaþingi á Austfjörðum í síðustu viku. 27. september 2022 06:26 Fornleifafræðingar funda með ráðherra vegna skipunar þjóðminjavarðar Stjórn Félags fornleifafræðinga fundar með safnamálaráðherra næstkomandi mánudag um ráðningu þjóðminjavarðar. Formaður félagsins segir réttast að draga ráðninguna til baka og byrja upp á nýtt. Staða Þjóðminjavarðar sé ein sú bitastæðasta innan safnastarfs á Íslandi. 22. september 2022 13:23 Hafa ekkert heyrt frá Lilju Félag fornleifafræðinga hefur hvorki heyrt frá Lilju Alfreðsdóttur menningarmálaráðherra né umboðsmanni Alþingis vegna kvörtun þeirra á skipun Hörpu Þórsdóttur í embætti þjóðminjavarðar. 22. september 2022 07:54 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Innlent Ráðherrar hafi verið ítrekað varaðir við gjöf Haraldar Innlent Sat saklaus í unglingafangelsi í tvö ár Innlent Íransforseti fórst í þyrluslysinu Erlent „Ég stóð bara með sóttvarnalækni“ Innlent Saksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Erfitt að ímynda sér meiri harðlínumann en Raisi Innlent Fimm stríðsþristar á leiðinni til landsins Innlent Handtökuskipun á hendur forsætisráðherra og kjaradeila Innlent Fleiri fréttir Gæsluvarðhald yfir Davíð Viðarssyni framlengt 80 til 120 herskip lágu í Hvalfirði Fyrsti stríðsþristurinn lentur Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna sé vanhæft til að takast á við aðstæðurnar Handtökuskipun á hendur forsætisráðherra og kjaradeila Séra Eva Björk ráðin biskupsritari Fimm stríðsþristar á leiðinni til landsins Samningur BÍ í höfn í Karphúsinu Ráðherrar hafi verið ítrekað varaðir við gjöf Haraldar Sungið og sungið á Sauðárkróki „Ég stóð bara með sóttvarnalækni“ Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Ósk um handtökuheimild og deilur um Erfðagreiningu Erfitt að ímynda sér meiri harðlínumann en Raisi Sat saklaus í unglingafangelsi í tvö ár Frambjóðendur geti nýtt sér skoðanakannanir Glæsilegt fuglasafn í veiðihúsinu við Hítará Varasamt að ferðast á sumardekkjum í kvöld Óttast um afdrif Íransforseta og ferðaveðrið í beinni Stuðningur Katrínar við sóttvarnarlækni sjálfsagður „Fólk er bara að bíða“ Tveir prestar og tveir djáknar vígðir í Skálholti Lægð yfir landinu og snjókoma fyrir norðan Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Aukin skjálftavirkni og erjur um Erfðagreiningu Örlítil aukning í skjálftavirkni undir Svartsengi Forsetakosningar, mansal og samningar Reykjavíkur við olíufélögin Segir Helgu fara með rangt mál Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Sjá meira
Segir Lilju harma skipun þjóðminjavarðar en ekki geta dregið hana til baka Ólöf Gerður Sigfúsdóttir, formaður Íslandsdeildar International Council of Museums (ICOM), segir Lilju Alfreðsdóttur menningarmálaráðherra hafa harmað skipun þjóðminjavarðar án auglýsingar á Safnaþingi á Austfjörðum í síðustu viku. 27. september 2022 06:26
Fornleifafræðingar funda með ráðherra vegna skipunar þjóðminjavarðar Stjórn Félags fornleifafræðinga fundar með safnamálaráðherra næstkomandi mánudag um ráðningu þjóðminjavarðar. Formaður félagsins segir réttast að draga ráðninguna til baka og byrja upp á nýtt. Staða Þjóðminjavarðar sé ein sú bitastæðasta innan safnastarfs á Íslandi. 22. september 2022 13:23
Hafa ekkert heyrt frá Lilju Félag fornleifafræðinga hefur hvorki heyrt frá Lilju Alfreðsdóttur menningarmálaráðherra né umboðsmanni Alþingis vegna kvörtun þeirra á skipun Hörpu Þórsdóttur í embætti þjóðminjavarðar. 22. september 2022 07:54
Saksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Erlent
Saksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Erlent