FH-ingar styrkja sig

Svavar Ingi Sigmundsson (t.h.) ásamt Ásgeiri Jónssyni, formanni handknattleiksdeildar FH, …
Svavar Ingi Sigmundsson (t.h.) ásamt Ásgeiri Jónssyni, formanni handknattleiksdeildar FH, eftir undirskriftina í dag. Ljósmynd/FH

Handknattleiksdeild FH hefur tilkynnt að markvörðurinn Svavar Ingi Sigmundsson sé búinn að skrifa undir þriggja ára samning við félagið. Gengur hann til liðs við Hafnfirðingana í sumar og kemur frá uppeldisfélagi sínu KA.

Svavar Ingi, sem er 20 ára gamall, hefur leikið með öllum yngri landsliðum HSÍ og er hluti af U21-árs landsliði Íslands.

„Svavar Ingi er einn efnilegasti markmaður landsins og erum við FH-ingar virkilega ánægðir með að fá hann í Kaplakrika,“ sagði Ásgeir Jónsson, formaður handknattleiksdeildar FH, eftir undirskriftina í morgun.

„Fyrstu kynni okkar af Svavari Inga eru að hér er á ferð alvörudrengur sem er með mikinn metnað og hann ætlar sér langt. Við FH-ingar munum hjálpa honum að ná sínum markmiðum,“ bætti Ásgeir við.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert