Rúnar markahæstur í öruggum sigri

Rúnar Kárason var öflugur í liði Ribe-Esbjerg í dag.
Rúnar Kárason var öflugur í liði Ribe-Esbjerg í dag. Haraldur Jónasson/Hari

Rúnar Kárason átti mjög góðan leik og var markahæstur allra þegar lið hans Ribe-Esbjerg vann góðan 27:21 sigur gegn Mors-Thy í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik í dag.

Rúnar skoraði sjö mörk og gaf eina stoðsendingu að auki í leiknum í dag.

Nú fer fram síðari hluti dönsku úrvalsdeildarinnar þar sem henni er skipt í tvennt og keppir Ribe-Esbjerg í þeim hluta þar sem lið freista þess að forða sér frá falli.

Þannig er þó mál með vexti að ekkert liðanna sem keppir um þessar mundir getur fallið þar sem lið Árósa hefur dregið sig úr keppni og mun sameinast Skanderborg í sumar. Því er litið á það sem svo að Árósaliðið sé þegar fallið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert