Körfubolti

Jón Axel frá­bær er Skyliners nálgast sæti í úr­slita­keppninni

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Jón Axel í leik með Fraport.
Jón Axel í leik með Fraport. vísir/Getty

Jón Axel Guðmundsson átti frábæran leik er Fraport Skyliners vann níu stiga sigur á Vechta í þýsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld, lokatölur 84-75.

Jón Axel hefur verið öflugur það sem af er tímabili í Þýskalandi og þar var engin breyting á í kvöld. Hann var stigahæstur með 17 stig ásamt því að gefa tvær stoðsendingar, stela boltanum tvívegis og hirða fjögur fráköst.

Skyliners eru eftir sigur kvöldsins í 9. sæti með 16 stig, aðeins fjórum stigum frá sæti í úrslitakeppni þýsku úrvalsdeildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×