52,5% styðja ríkisstjórnina

Stuðningur við ríkisstjórnina mælist 52,5% í nýrri könnun MMR.
Stuðningur við ríkisstjórnina mælist 52,5% í nýrri könnun MMR. mbl.is/Árni Sæberg

Sjálfstæðisflokkurinn mældist með mest fylgi stjórnmálaflokka á Alþingi eða 23,1% í nýrri könnun MMR. Þetta er rúmlega tveimur prósentustigum hærra en við síðustu könnun MMR sem framkvæmd var í mars 2021.

Fylgi Samfylkingarinnar jókst um tæplega tvö prósentustig og mældist 15,4% og fylgi Pírata jókst um tæplega tvö prósentustig og mældist nú 13,2%.

Þá minnkaði fylgi Framsóknarflokksins um rúmt prósentustig og mældist nú 11,5%, fylgi Vinstri-grænna minnkaði um tæplega tvö prósentustig og mældist nú 10,1% og fylgi Miðflokksins minnkaði um rúmlega tvö prósentustig og mældist nú 6,9%.

Stuðningur við ríkisstjórnina mældist 52,5%, rúmu prósentustigi minna en við síðustu mælingu, að því er segir í tilkynningu MMR. 

Kosningar fara fram í haust.
Kosningar fara fram í haust. mbl.is/Ómar Óskarsson

MMR kannaði fylgi stjórnmálaflokka og stuðning við ríkisstjórn og var könnunin framkvæmd 29. mars – 7. apríl 2021 og var heildarfjöldi svarenda 940 einstaklingar, 18 ára og eldri.

  • Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 23,1% og mældist 21,0% í síðustu könnun.
  • Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 15,4% og mældist 13,8% í síðustu könnun.
  • Fylgi Pírata mældist nú 13,2% og mældist 11,5% í síðustu könnun.
  • Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 11,5% og mældist 12,7% í síðustu könnun.
  • Fylgi Vinstri grænna mældist nú 10,1% og mældist 11,7% í síðustu könnun.
  • Fylgi Viðreisnar mældist nú 10,0% og mældist 10,0% í síðustu könnun.
  • Fylgi Miðflokksins mældist nú 6,9% og mældist 9,3% í síðustu könnun.
  • Fylgi Flokks fólksins mældist nú 4,7% og mældist 5,1% í síðustu könnun.
  • Fylgi Sósíalistaflokks Íslands mældist nú 4,0% og mældist 3,8% í síðustu könnun.
  • Stuðningur við aðra mældist 1,0% samanlagt.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert