Erlent

Ritt Bjer­rega­ard er látin

Atli Ísleifsson skrifar
Ritt Bjerregaard var fyrst kjörin á þing fyrir Jafnaðarmannaflokkinn árið 1971.
Ritt Bjerregaard var fyrst kjörin á þing fyrir Jafnaðarmannaflokkinn árið 1971. EPA

Danska stjórnmálakonan Ritt Bjerregaard, sem meðal annars gegndi embætti ráðherra, yfirborgarstjóra í Kaupmannahöfn og framkvæmdastjóra í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, er látin, 81 árs að aldri.

Fjölskylda Bjerregaard greinir frá því að hún hafi andast í faðmi fjölskyldu sinnar á heimili sínu í Austurbrú í Kaupmannahöfn á laugardag. Hún hafði glímt við krabbamein síðustu ár, að því er segir í frétt DR

Ritt Bjerregaard starfaði á sínum yngri árum sem kennari en var fyrst kjörin á þing fyrir Jafnaðarmannaflokkinn árið 1971. Hún sat óslitið á þingi til ársins 1995 og aftur frá 2001 til 2005. Á árunum 1994 til 1999 var hún framkvæmdastjóri umhverfismála í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins og á árunum 2006 til 2010 var hún yfirborgarstjóri í Kaupmannahöfn.

Á stjórnmálaferlinum gegndi hún fjölda ólíkra ráðherraembætti, meðal annars ráðherra menntamála og matvæla. Hún tók við sínu fyrsta ráðherraembætti 32 ára gömul, einungis tveimur árum eftir að hún settist fyrst á þing. Hún varð þá yngsta konan í sögu Danmerkur til að gegna ráðherraembætti.

Bjærregaard lætur eftir sig eiginmann, sagnfræðinginn og rithöfundinn Søren Mørch.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×