„Við erum ennþá í áfalli eftir þetta“ Auður Ösp Guðmundsdóttir skrifar 15. mars 2023 19:30 Í samtali við Vísi fyrr í dag segir kærasta konunnar sem slasaðist að nokkuð hafi verið dregið úr atvikalýsingum í fréttum um slysið í gær. Vísir/Vilhelm „Við héldum að þetta væri eitthvað hryðjuverkadæmi. Það var ekki eins og þetta væri einhver lítil Súkka að bakka óvarlega út úr stæði,“ segir kærasta konunnar sem slasaðist í gær þegar ökumaður missti stjórn á bifreið sinni, ók á sjö bíla og hafnaði að endingu á rúðu á hárgreiðslustofu í Álfheimum í Reykjavík.
Fram kom í frétt Vísis í gær að samkvæmt Þorsteini Gunnarssyni varðstjóra hjá slökkviliðinu var um óviljaverk að ræða og betur fór en á horfðist. Fram kom að kona hefði slasast í óhappinu og verið flutt á sjúkrahús til aðhlynningar, ásamt einum til viðbótar. Þorsteinn sagðist halda að engin teljandi meiðsl hefðu orðið á fólki. Hins vegar varð töluvert tjón á bílunum, og á húsnæðinu þar sem bíllinn ók á rúðu verslunarrýmisins. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 var einnig greint frá atvikinu og kom þar fram að „glerbrotum hefði rignt yfir starfsfólk og viðskiptavini stofunnar.“ Þá kom fram bílinn hefði ekið utan í konu. „Við vorum bara hérna með sitt hvorn viðskiptavininn og svo bara þetta gerðist mjög snöggt. Við heyrðum miklar drunur og svo kom bara bílinn hérna inn,“ sagði Auður Bryndís Sigurðardóttir, eigandi hársgreiðslustofunnar Hárfélagsins, í samtali við fréttamann Stöðvar 2 í gærkvöldi. Svakalegt högg Í samtali við Vísi fyrr í dag segir kærasta konunnar sem slasaðist að nokkuð hafi verið dregið úr atvikalýsingum í fréttum um slysið í gær. „Að bíllinn hafi „keyrt utan í konu“ er bara alls ekki rétt. Það er ekki eins og hann hafi bara aðeins nuddast utan í hana. Hann stígur bensínið í botn, bæði bakkar yfir hana og keyrir svo yfir hana.“ Konan sem Vísir ræddi við segist hafa skutlað kærustu sinni í klippingu áður en þetta gerðist og rétt verið búin að kveðja hana þegar slysið átti sér stað. Hún hafi því horft upp á þetta allt saman. Líkt og fram hefur komið keyrði maðurinn á sjö bíla.Vísir/Vilhelm „Ég sat í bílstjórasætinu, hurðin var opin og ég er að segja bless við hana áður en hún fer í klippingu. Og þá kemur hann með svakalegu höggi. Þetta var eldri maður sem var með bílinn sinn í gangi, stór nýr Benz-jeppi. Hann kemst ekki inn um bílstjórahurðina því einhver lagði svo þétt upp að, þannig að hann fer farþegamegin og ætlar að klöngrast yfir. Hann stígur ekki í gólfið heldur stígur bensíngjöfina í botn og bíllinn smellur í bakkgír. Hann bakkar yfir hana og kemur svo á sömu ferð til baka því hann ætlar að setja bílinn í park en setur í drive. Hann er ennþá með bensíngjöfina í botni og keyrir svo aftur yfir hana. Svo endar hann inni í hárgreiðslustofunni.“ Líkt og fram hefur komið keyrði maðurinn á sjö bíla. „Það var bara eins og hann væri óður því í fyrstu virtist hann ekki einu sinni vera undir stýri,“ segir konan. „Ég næ að hlaupa út og einhvern veginn náði ég að lyfta henni upp af götunni og forða okkur í burtu. Við héldum að bíllinn kæmi aftur því það var eins og það væri ennþá hreyfing á honum og við vissum ekki hvað manninum gekk til á þessari stundu. Svo var bara hringt á neyðarlínuna og allt fer í gang.“ Hún segir áfallið hafa verið mikið og meiðsli kærustu sinnar séu umtalsverð. „Hún er mjög mikið marin og það blæddi inn á vöðva og naglaförin eftir dekkin sjást hér og þar. Við erum ennþá í áfalli eftir þetta. Það er bara mildi að ekki hafið farið verr og hugur okkur er auðvitað hjá bílstjóranum, þar sem þetta var slys.”
Slökkvilið Reykjavík Samgönguslys Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Erlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Ástand Fico enn alvarlegt Erlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Býst við aukinni sókn Rússa Erlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Fleiri fréttir Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Sjá meira