Liechtenstein án lykilmanna

Liechtenstein tapaði 0:2-fyrir Þýskalandi þegar liðið mættust í Vaduz í …
Liechtenstein tapaði 0:2-fyrir Þýskalandi þegar liðið mættust í Vaduz í september. AFP

Liechtenstein verður án þeirra Daniel Kaufmann og Dennis Salanovic í kvöld þegar liðið mætir Íslandi í J-riðli undankeppni HM 2022 í knattspyrnu á Laugardalsvelli.

Kaufmann, sem er þrítugur og leikur með Eschen/Mauren í heimalandinu, á að baki 64 A-landsleiki fyrir Liechtenstein en hann tekur út leikbann í kvöld.

Þá er hinn 25 ára gamli Dennis Salanovic að glíma við meiðsli en hann leikur með Oulu í efstu deild Finnlands en hann á að baki 46 A-landsleiki þar sem hann hefur skorað fjögur mörk.

Ísland er með 5 stig í fimmta og næst neðsta sæti riðilsins en Liechtenstein er í neðsta sætinu með 1 stig eftir sjö umferðir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert