Læknir grunaður um röð alvarlegra mistaka Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 22. febrúar 2021 18:31 Heilbrigðisstofnun Suðurnesja hefur vísað málinu til lögreglu. Vísir/Egill Fyrrverandi læknir á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sætir rannsókn vegna gruns um vanrækslu og röð alvarlegra mistaka sem leiddu til andláts að minnsta kosti eins sjúklings. Málið er á borði lögreglu.
Embætti landlæknis hefur haft störf læknisins til skoðunar frá því í nóvember 2019, en samhliða því lét hann af störfum á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Ekki er útilokað að fleiri starfsmenn stofnunarinnar tengist málinu með einhverjum hætti. Athugasemdir um störf læknisins bárust í kjölfar andláts konu á áttræðisaldri. Fjölskylda konunnar hafði þá gert verulegar athugasemdir við störf læknisins. Upphófst þá sá grunur að læknirinn hefði sent fólk á líknandi meðferð að óþörfu og samkvæmt heimildum fréttastofu eru fleiri mál á hendur lækninum til skoðunar. Aðstandendur annarra sjúklinga hafa verið upplýstir um málið en í samtali við fréttastofu segist þeim hafa brugðið við fréttirnar. Þá herma heimildir að rannsóknin hafi verið umfangsmikil en álit landlæknis spannar á fimmta tug blaðsíðna. Í niðurstöðukaflanum kemur fram að maðurinn hafi gert mörg og alvarleg mistök á ýmsum sviðum, hvort sem er tengdum greiningum, hjúkrun eða lífslokameðferð, svo fátt eitt sé nefnt. Vísa málinu til lögreglu Læknirinn lét sjálfur af störfum þegar málið kom upp en við eftirgrennslan er nafn hans ekki að finna yfir einstaklinga með lækningaleyfi. Embætti landlæknis gat ekki tjáð sig um málið né hvort viðkomandi hafi verið sviptur starfsleyfinu en í skriflegu svari segir að almennt megi segja ef nafn heilbrigðisstarfsmanns sé ekki að finna í starfsleyfaskrá geti ástæðan verið að viðkomandi hafi afsalað sér leyfinu, til dæmis vegna veikinda eða verið sviptur því. Heilbrigðisstofnun Suðurnesja vildi ekki tjá sig þegar eftir því var leitað en sendi fréttastofu yfirlýsingu þar sem segir að þjónustu stofnunarinnar hafi verið verulega ábótavant og ekki í samræmi við fagleg viðmið. Málið sé litið alvarlegum augum og allt verði gert til að koma í veg fyrir að atburðurinn endurtaki sig. Stofnunin hafi vísað málinu til lögreglu. Þá íhugar fjölskylda hinnar látnu næstu skref í málinu. Yfirlýsing HSS í heild: Yfirlýsing frá framkvæmdastjórn HSS Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS) barst 18. þessa mánaðar álit frá Embætti landlæknis þar sem niðurstaða var sú að þjónustu stofnunarinnar við sjúkling sem lést á sjúkradeild síðla árs 2019 hafi verið verulega ábótavant og ekki í samræmi við fagleg viðmið og viðurkennt verklag. Framkvæmdastjórn HSS lítur þessa niðurstöðu mjög alvarlegum augum og munum við gera allt sem í okkar valdi stendur til að koma í veg fyrir að slíkir atburðir endurtaki sig. Við hörmum atburðinn og hugur okkar er hjá aðstandendum. Eftir að málið kom upp var strax settur enn meiri kraftur í að bæta verkferla sem snúa að utanumhaldi og eftirfylgni með skjólstæðingum heilbrigðisstofnunarinnar. Læknirinn sem bar ábyrgð á meðferðinni var settur í leyfi og lét í kjölfarið af störfum við stofnunina. Jafnframt vísaði HSS umræddu máli til lögreglu eins og lög gera ráð fyrir. Af þeim sökum getur stofnunin ekki tjáð sig frekar um málið að svo stöddu.
Heilbrigðismál Reykjanesbær Heilbrigðisstofnun Suðurnesja Læknamistök á HSS Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Innlent Viktor og Kári heltast úr lestinni Innlent Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Innlent Dramatík þegar tveimur var tilkynnt um ólögleg framboð Innlent Ástand hinnar látnu bar þess merki að henni hefði verið ráðinn bani Innlent Helmingurinn af búslóðinni í ruslið Innlent Guðrún á Glitstöðum segir vaðið yfir vilja almennings Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Ætlaði að ganga frá álverinu og upp á Keflavíkurflugvöll Innlent Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Innlent Fleiri fréttir Boða verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli í maí Kjörinn heiðursmeðlimur í bandarísku lista- og vísindaakademíuna Guðrún á Glitstöðum segir vaðið yfir vilja almennings Helmingurinn af búslóðinni í ruslið Fyrstu tilnefningar til Vigdísarverðlauna Evrópuráðsþingsins kynntar á Alþingi Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Ellefu verða í framboði til embættis forseta Íslands Landlæknir fer með ákvörðun Persónuverndar fyrir dóm Stór hópur fanga sem ekki treystir stofnunum Viktor og Kári heltast úr lestinni Ástand hinnar látnu bar þess merki að henni hefði verið ráðinn bani Dramatík þegar tveimur var tilkynnt um ólögleg framboð Best ef forseti hefur ekki verið í stjórnmálastarfi Ráðherra kynnir nýtt mælaborð farsældar barna Skjálfti við Bláfjöll í morgun og óbreytt við Sundhnúk Ætlaði að ganga frá álverinu og upp á Keflavíkurflugvöll Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir Óttast að saga slökkviliða á Íslandi glatist Plokkdagurinn mikli haldinn hátíðlegur um land allt Á ofsahraða undir áhrifum fíkniefna Efnahagsstefnan sé að ýta fólki í verðtryggð lán Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Langt í að þeir nái sér að fullu Lögregla með eftirför í Vogahverfi Íslandsferðin sem breyttist í martröð Fundu hræ fimm hvolpa í Mosfellsbæ Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Sigurvin dró smábát í land Vill að fréttastofa RÚV biðji Maríu Sigrúnu afsökunar Sjá meira