Innlent

Eignar­hlutar ríkisins í fjár­mála­fyrir­tækjunum metnir á 354 milljarða

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Ráðherra staðfestir að ekki verður ráðist í frekari sölu á eignarhluta ríkisins í Íslandsbanka fyrr en eftir umræður á Alþingi.
Ráðherra staðfestir að ekki verður ráðist í frekari sölu á eignarhluta ríkisins í Íslandsbanka fyrr en eftir umræður á Alþingi. Vísir/Arnar

Samanlagt virði eignarhluta ríkisins í Íslandsbanka, Landsbankanum og Sparisjóði Austurlands nam 354 milljörðum króna miðað við sex mánaða uppgjör bankanna og hlutdeild ríkisins í eigin fé. Þá stóð eignarhlutur ríkisins í Íslandsbanka í 42,5 prósentum.

Þetta kemur fram í svörum fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur, þingmanns Viðreisnar, um frekari sölu á eignarhluta ríkisins í Íslandsbanka.

Þorbjörg spurði meðal annars um samanlagt virði allra eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum, sem Bankasýsla ríkisins hefði umsjón með.

„Samkvæmt ríkisreikningi 2021 var samanlagt virði eignarhlutanna þriggja í Íslandsbanka, Landsbankanum og Sparisjóði Austurlands út frá eigin fé (hlutdeildarvirði) um 415 milljarðar kr. í lok 2021, en þá átti ríkið 65% hlut í Íslandsbanka. Við sölu á 22,5% hlut ríkisins í Íslandsbanka í mars sl. lækkaði hlutdeild ríkisins í eigin fé bankans í sama mæli og þar með einnig samanlagt virði ríkisins í fjármálafyrirtækjum sem Bankasýsla ríkisins hefur umsjón með,“ segir í svarinu.

Þorbjörg spurði einnig um „hið nýja fyrirkomulag við frekari sölu á eignarhluta ríkisins í Íslandsbanka sem ríkisstjórnin boðaði 19. apríl sl.“ og fékk þau svör að á þingmálaskrá væri gert ráð fyrir frumvarpi til laga um meðferð eingarhluta ríkisins í fyrirtækjum á haustþingi.

„Í því frumvarpi, eða sérstöku frumvarpi sem lagt verður fram samhliða, verða settar fram tillögur um sölumeðferð eignarhluta í fjármálafyrirtækjum. Ráðuneytið taldi rétt að bíða með að fullvinna tillögur um breytt fyrirkomulag þar til úttekt Ríkisendurskoðunar á sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka 22. mars 2022 hefði verið gefin út og rædd á Alþingi. Horft verður til niðurstaðna skýrslunnar og ábendinga sem í henni koma fram við þá vinnu,“ segir í svari ráðherra.

Þá er ítrekað að ekki verði ráðist í frekari sölu á hlutum ríkisins í Íslandsbanka í bili en þegar ný löggjöf liggi fyrir muni ákvörðun um mögulega sölu verða tekin fyrir á Alþingi.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×