Úrslitin í W Series ráðast í Texas um helgina Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 24. október 2021 07:00 Jamie Chadwick stillir sér upp við bíl sinn eftir góðan árangur í tímatöku. Ríkjandi meistari, Jamie Chadwick og Alice Powell eru líklegastar til að tryggja sér titilinn í W Series í Austin, Texas í Bandaríkjunum um helgina. Síðasta keppni tímabilsins er á dagskrá í kvöld.
Staðan fyrir helgina var þannig að ríkjandi meistarinn, Chadwick og Powell voru jafnar á stigum. Chadwick mun vera á ráspól í báðum keppnum helgarinnar. Powell mun ræsa níunda og tíunda af stað í keppnunum tveimur. Það er því ljóst að hart verður barist í Austin Texas. Keppnirnar fara fram sem stuðningskeppnir við Formúlu 1 keppni sem fram fer í Texas um helgina. W Series er kappakstursmótaröð á eins sæta (e. single seater) með vængi sem auka niðurtog og á sléttum dekkjum, eingöngu ætluð konum. Bílarnir eru eins svo keppnin er afar jöfn og skemmtileg. Ökumenn eru eingöngu valdar út frá hæfileikum sínum, ekki fjárhagslegum stuðningi eða baklandi. Markmiðið er að auka sýnileika kvenna í kappakstri til að veita þátttakendum frekari reynslu við aksturs eins sæta bíla. Slíkt er undirstöðuatriði til að auka líkur á að kona fái keppnissæti í Formúlu 1. Auk þess að auka reynslu kvenna við aksturs eins sætis bíla, þá er markmiðið að auka sýnileika kvenna sem fyrirmynda í kappakstri. Hugmyndin er því afar góð.
Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Forsetaframbjóðandi er á villigötum“ Innlent Íslendingur á meðal farþega í flugvélinni Erlent „Sjálfum leiðast mér þessar nasistalíkingar“ Innlent Líst best á Baldur og Höllu en verst á Ástþór Innlent Kviknaði í hverju fjórhjólinu á fætur öðru Innlent „Ber þess merki að eitthvað sé mjög nálægt því að bresta“ Innlent Íbúar undirbúa hópmálsókn vegna uppkaupa í Grindavík Innlent OpenAI hættir notkun raddar eftir inngrip lögmanna Johansson Erlent Einn látinn eftir mikla ókyrrð í lofti Erlent Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Innlent Fleiri fréttir Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Fær einn af sextíu forsetaframbjóðendum upp í bíl til sín Sjá meira