Fylgjast sérstaklega vel með merkjum um gosóróa Sunna Kristín Hilmarsdóttir og Gunnar Reynir Valþórsson skrifa 2. mars 2021 08:28 Frá mælingum vísindamanna Veðurstofunnar á Reykjanesi í liðinni viku. Vísir/Vilhelm Engin merki sjást um gosóróa á Reykjanesskaga en vísindamenn Veðurstofu Íslands fylgjast sérstaklega vel með mögulegum merkjum þar um eftir tilkynningu vísindaráðs almannavarna í gær. Þetta segir Einar Hjörleifsson, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofunni, í samtali við fréttastofu.
Vísindaráð almannavarna telur líklegustu skýringu jarðskjálftavirkninnar á Reykjanesskaga undanfarna daga vera þá að kvikugangur sé að myndast undir svæðinu þar sem mest jarðskjálftavirkni hefur verið. Ráðið skoðaði gervihnattamyndir sem bárust í gær og sýnir úrvinnsla úr þeim myndum meiri færslu en áður hafði orðið vart við. Kvikuinnskotið sé að öllum líkindum undir Fagradalsfjalli. Viðvarandi skjálftavirkni hefur verið á svæðinu við Fagradalsfjall, Keili og Trölladyngju í nótt og hafa mælst fjórir skjálftar yfir fjórum að stærð frá miðnætti. Einar segir virknina hafa komið í hviðum en hún sé nánast öll á sama svæði og öll á svipuðu dýpi í gær þannig að ástandið er nánast óbreytt. Aðspurður hvað vísindamennirnir lesa í það að hún sé enn á sama svæði segir Einar: „Bara það að það er óbreytt ástand frá í gær og við fylgjumst áfram með. Við sjáum engar breytingar í dýpi á skjálftunum og það er enn spenna að losna á þessu svæði.“ Þá séu engin merki um gosóróa. „Nei, við höfum ekki séð nein merki um gosóróa en við vöktum þetta vel. Eftir vísindaráðstilkynninguna í gær þá fylgjumst við sérstaklega vel með gosóróa á þessum tímapunkti,“ segir Einar. Hrinan á Reykjanesskaga stendur enn yfir og er mesta virknin nú bundin við nágrenni Keilis og Trölladyngju. Aðeins dró...Posted by Veðurstofa Íslands on Tuesday, March 2, 2021
Eldgos og jarðhræringar Jarðhræringar á Reykjanesi Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Erlent Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Innlent Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Erlent Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu Innlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Innlent Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Innlent Hafa rukkað þá sem valda sinubruna um kostnað við útkall Innlent Kolbeinn hafi strokið kynfæri stúlkunnar ítrekað Innlent Fleiri fréttir „Ég get ekki annað en sagt satt“ Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Sólríkasta byrjun árs í Reykjavík í 77 ár Hafa rukkað þá sem valda sinubruna um kostnað við útkall Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Fjöldi verkfallsboðana á Keflavíkurflugvelli áhyggjuefni Kosið um sameiningu Húna- og Skagabyggðar í júní Nýjustu skoðanakannanir, verkfallsaðgerðir á flugvellinum og týndur gaffall Halla Hrund líka vinsæll annar kostur Kolbeinn hafi strokið kynfæri stúlkunnar ítrekað Segja lýðræðis- og mannréttindabakslag staðreynd Ný sendiskrifstofa opnuð í Síerra Leóne Baldur segir niðurstöður nýjustu kannana vonbrigði Halla Hrund mælist með mest fylgi í nýrri könnun Maskínu Tilvísunum vegna skekkju á höfuðkúpu ungbarna fjölgað mikið Fréttaskýring Maríu Sigrúnar kemur út á mánudag Einar segir forsetaembættið um ekki neitt Svona gæti bensínstöðvarreiturinn við Ægisíðu litið út Ákærð fyrir að kæfa son sinn með kodda Börn lögð inn með kíghósta „Við reyndum eins og við gátum“ Framkvæmdanefnd fyrir Grindavík sett á laggirnar Sambærileg rúðubrot í Lækjargötu og á Skólavörðustíg Skipar framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkur Spellvirkinn lætur til skarar skríða á ný Svona var Pallborðið með Höllu Hrund, Katrínu og Baldri Svandís boðar til blaðamannafundar Sjá meira