Real Madrid sýnir Mac Allister áhuga - Greenwood eftirsóttur - Mourinho til Tyrklands? - Slot vill fá Silva
banner
   mán 05. desember 2022 18:43
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Saka klár í að taka víti - „Ég hef þroskast"
Mynd: EPA

Bukayo Saka á slæmar minningar frá EM í fyrra þegar England tapaði úrslitaleiknum gegn Ítalíu.


Leikurinn fór alla leið í vítaspyrnukeppni en Marcus Rashford, Jadon Sancho og Saka klikkuðu á vítaspyrnum sem varð Englandi að falli.

Þeir urðu fyrir miklu aðkasti eftir þetta en Saka segist vera klár í að taka víti á HM ef að því kemur.

„Ég hef þroskast og bætt mig sem leikmaður og manneskja eftir þetta augnablik. Ég hefði ekki tekið af skarið fyrir Arsenal svona oft ef ég væri ekki með sjálfstraust. Ef af því kemur og ég er valinn til að taka víti verð ég meira en glaður að gera það," sagði Saka.

„Ég hef reynt að gleyma þessu en ég veit að ég mun aldrei geta það. Þetta er sögulegt en á sama tíma, að koma hingað og skora þrjú mörk hingað til hefur lift mér mikið upp."


Athugasemdir
banner
banner
banner