Þarf í aðgerð vegna hnémeiðsla

Lonzo Ball.
Lonzo Ball. Ljósmynd/NBA

Bandaríski körfuboltamaðurinn Lonzo Ball, leikmaður Chicago Bulls, þarf í aðgerð vegna hnémeiðsla sem hann varð fyrir á dögunum.

Þetta er í annað sinn á s.l. ári sem Ball þarf í aðgerð vegna hnémeiðsla en hann var mikið frá á síðasta tímabili vegna þeirra.

Hann fer í aðgerð á næstu dögum og er talið að hann verði frá í 4-6 vikur hið minnsta. Mun hann því missa af fyrstu vikum tímabilsins sem hefst 19. október.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert