Ungverjar og Pólverjar gætu stöðvað fjárlög ESB Kjartan Kjartansson skrifar 16. nóvember 2020 13:39 Viktor Orban, forsætisráðherra Ungverjalands, líst illa á að aðgangur að sjóðum ESB verði skilyrtir við að aðildarríkin sýni réttarríkinu virðingu. Í stjórnartíð hans hafa dómstólar, fjölmiðlar og félagasamtök glatað sjálfstæði sínu að miklu leyti. Vísir/EPA
Ráðamenn í Ungverjalandi og Póllandi hóta því að beita neitunarvaldi til að stöðva fjárlagaáætlun Evrópusambandsins og aðgerðaáætlun gegn kórónuveirufaraldrinum ef virðing fyrir réttarríkinu verður gert að skilyrði fyrir fjárveitingum. ESB hefur sakað sitjandi ríkisstjórnir í ríkjunum tveimur um að grafa undan réttarríkinu. Viðræður um fjárlagaáætlun ESB fyrir árinu 2021 og 2027 halda áfram í Brussel í dag. Talsmaður ungverskur ríkisstjórnarinnar ítrekaði hótanir hennar um að hún beiti neitunarvaldi sínu. Dómsmálaráðherra Póllands tók í sama streng, að sögn Reuters-fréttastofunnar. Leiðtogar ESB samþykktu í júlí að aðgangur að sameiginlegum fjármunum sambandsins yrði skilyrtur við að stjórnvöld í aðildarríkjunum virtu réttarríkið. Ungverjar og Pólverjar hafa andmælt þeim áformum. Zbigniew Ziobro, dómsmálaráðherra Póllands, sagði að neitunarvaldi yrði til að koma í veg fyrir „takmörkun á fullveldi Póllands“. Evrópusambandið sakar ríkisstjórnir Ungverjalands og Póllands um að grafa undan sjálfstæði dómstóla, fjölmiðla og frjálsra félagasamtaka. Ríkin tvö gætu því átt á hættu að missa aðgang að tugum milljarða evra úr sjóðum sambandsins verði hann skilyrtur við að þau virði grundvallarstoðir réttarríkisins. „Ef Ungverjar beita neitunarvaldi á fjárlagaáætlunina skapast neyðarástand,“ segir hátt settur erindreki Evrópusambandsins við Reuters. Óformlegar viðræður eigi sér nú stað, þar á meðal á milli forseta framkvæmdastjórnarinnar, formanns leiðtogaráðs og Angelu Merkel, kanslara Þýskalands sem fer með forsæti í ráðherraráði sambandsins.
Evrópusambandið Ungverjaland Pólland Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Innlent Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Innlent „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Innlent Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni Innlent Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Erlent Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Myndband sýnir árás Diddy Erlent Fleiri fréttir Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka Sjá meira