Eimskipafélag Íslands hagnaðist um 3,7 milljónir evra (600 m.kr.) á fyrstu níu mánuðum ársins. Þetta kemur fram í uppgjöri fyrirtækisins fyrir þriðja ársfjórðung, sem birt var í dag.
Samanlagt var tap á rekstri félagsins fyrstu sex mánuði ársins, en því snúið við með 6,2 milljóna evra hagnaði á þriðja ársfjórðungi.
Rekstrartekjur félagsins á fyrstu níu mánuðum ársins námu 492,7 milljónum evra og drógust saman um 2,3% milli ára. Voru áhrif kórónuveirufaraldursins á dótturfélögin Sæferðir og Gáru neikvæð um 1,2 milljónir evra.
Kostnaður félagsins lækkaði um 2% milli ára og nam 445,9 milljónum evra. Þar af lækkaði launakostnaður um 13,5%, en nær helming þess má skýra vegna gengismunar. Eimskip gerir upp í evrum.
Eigið fé félagsins nam 228,1 milljónum evra (37,1 ma.kr.) við lok tímabilsins, þ.e. 30. september 2020.
Í tilkynningu frá félaginu er haft eftir Vilhelm Má Þorsteinssyni forstjóra að hann sé ánægður með niðurstöðu fjórðungsins og áframhaldandi bata í rekstri félagsins. „Það var jákvæður viðsnúningur í magni á fjórðungnum og hagræðingaraðgerðir síðustu missera eru að skila sér í lægri kostnaði og bættri arðsemi. Magn í útflutningi frá Íslandi og Færeyjum var sterkt á fjórðungnum sem og í frystiflutningsmiðlun á alþjóðavettvangi. Enn fremur erum við að uppskera á hagkvæmara gámasiglingakerfi sem við innleiddum fyrr á árinu sem hluta af mótvægisaðgerðum vegna COVID-19 og við erum farin að sjá ávinning af samstarfi okkar við Royal Arctic Line. Hins vegar finnum við einnig fyrir neikvæðum áhrifum faraldursins t.d. á umboðsþjónustu skemmtiferðaskipa og á ferjurekstur á Íslandi en háannatími þeirrar starfsemi er á þriðja ársfjórðungi.“