Sigyn frá Men&Mice til Empower

Sigyn Jónsdóttir.
Sigyn Jónsdóttir.

Sigyn Jónsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri hugbúnaðarþróunar hjá nýsköpunarfyrirtækinu Empower og mun leiða þróun jafnréttis-hugbúnaðarins Empower Now. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Empower.

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2019/03/08/hringdi_bjollu_fyrir_jafnretti_kynjanna/

Sigyn starfaði áður hjá hugbúnaðarfyrirtækinu Men&Mice þar sem hún var forstöðumaður þjónustu og ráðgjafar til viðskiptavina. Sigyn er varaformaður stjórnar Tækniþróunarsjóðs og var formaður Ungra athafnakvenna (UAK) árin 2017-2019.  Hún hefur einnig starfað hjá Meniga og Seðlabanka Íslands.

https://www.mbl.is/vidskipti/frettir/2019/07/10/ny_stjorn_taeknithrounarsjods_skipud/

Sigyn er með B.Sc. í hugbúnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands og M.Sc. í Management Science & Engineering frá Columbia-háskóla í New York. 

„Við erum afar ánægð með að fá Sigyn í stjórnendateymi Empower en hún mun sinna einu mikilvægasta verkefni okkar á næstu misserum – hugbúnaðarþróuninni.  Fyrir utan víðtæka reynslu við hugbúnaðargerð, nýsköpun og teymisstjórnun þá hefur hún einnig mikla ástríðu fyrir jafnréttismálum.  Það er mikill fengur fyrir okkur að fá jafn öfluga konu og Sigyn inn í stjórnendateymið og við hlökkum til að vinna með henni að frekari þróun Empower Now,“ er haft eftir Þóreyju Vilhjálmsdóttur, framkvæmdastjóra Empower, í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK