Hækka atvinnuleysisbætur og viðspyrnustyrkur allt að 2,5 milljónir Kristín Ólafsdóttir skrifar 20. nóvember 2020 15:32 Ráðherrar kynna viðspyrnuaðgerðir á blaðamannafundi í Hörpu í dag. Vísir/Vilhelm
Ákveðið hefur verið að hækka grunnatvinnuleysisbætur upp í 307.403 krónur á næsta ári og mun heildarhækkun nema 6,2 prósent. Þá verður hægt að sækja um svokallaða viðspyrnustyrki innan skamms, fyrir alla rekstraraðila sem verða fyrir a.m.k. 60 prósent tekjufalli. Styrkirnir geta hæst orðið 2-2,5 milljónir króna og taka mið af rekstrarkostnaði árið 2019. Þetta er á meðal þess sem fram kemur í tilkynningu um efnahagsaðgerðir vegna kórónuveirufaraldursins sem ríkisstjórnin kynnti á blaðamannafundi síðdegis. Klippa: Upplýsingafundur ríkisstjórnarinnar 2,5 prósent viðbótarálag Í tilkynningu segir að sérstakt viðbótarálag verði greitt á grunnbætur atvinnuleysistrygginga á næsta ári sem koma eigi til móts við „þann stóra hóp sem á næstu mánuðum fellur út af tekjutengdum atvinnuleysisbótum.“ Álagið hljóðar uppá 2,5% og kemur til viðbótar þeirri 3,6% hækkun sem gert er ráð fyrir í fjárlagafrumvarpi. Með þessu nemur heildarhækkun grunnbóta 6,2% og þær verða því 307.403 krónur, að því er segir í tilkynningu. Þá verður hlutabótaleið stjórnvalda framlengd til 31. maí 2021. Hækkaðar greiðslur vegna framfærslu barna atvinnuleitenda verða einnig framlengdar út næsta ár þar sem 6% viðbótarálag reiknast ofan á grunnatvinnuleysisbætur vegna framfærslu hvers barns, í stað 4% áður. Auk þess verður atvinnuleitendum greidd desemberuppbót upp á rúmar 86 þúsund krónur. Þá voru kynntir svokallaðir viðspyrnustyrkir, sem ætlað er að aðstoða fyrirtæki við að viðhalda lágmarksstarfsemi meðan áhrifa faraldursins gætir. Úrræðið tekur til allra tekjuskattsskyldra rekstraraðila sem verða fyrir a.m.k. 60 prósent tekjufalli og gildir um alla rekstraraðila óháð rekstrarformi – einnig einyrkja sem stunda atvinnurekstur á eigin kennitölu. Fyrir rekstraraðila með tekjufall á bilinu 60-80%: Viðspyrnustyrkur getur orðið 400 þúsund kr. á hvert mánaðarlegt stöðugildi Getur hæst orðið 2 milljónir króna Fyrir rekstraraðila með tekjufall upp á 80%-100%: Viðspyrnustyrkur getur orðið 500 þúsund kr. á hvert mánaðarlegt stöðugildi Getur hæst orðið 2,5 milljónir króna Styrkfjárhæðir taka mið af rekstrarkostnaði en geta þó ekki orðið hærri en það tekjufall sem varð á tímabilinu sem er undir. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra sagði á blaðamannafundinum að hægt verði að sækja um viðspyrnustyrk fyrir tiltekinn mánuð og viðmiðunartímabil væri sami mánuður árið 2019. Umsóknir yrðu afgreiddar á um það bil einni viku. Bjarni boðaði jafnframt breytingar á lokunarstyrkjum en hámark á fjölda starfsmanna verður afnumið. Styrkirnir eru hugsaðir fyrir þá sem þurft hafa að loka frá 18. september 2020-31. maí 2021 og eru að hámarki 600 þúsund krónur á hvert stöðugildi. Hægt verði að sækja um lokunarstyrkina í lok næstu viku og umsóknir verði hægt að afgreiða á einni viku. 30 þúsund króna hækkun barnabóta á ári Þá verða skerðingarmörk í barnabótakerfinu hækkuð og er sögð munu skila einstæðum foreldrum með tvö börn, með 350 þúsund til 580 þúsund krónur í tekjur á mánuði, 30 þúsund króna hækkun barnabóta á ári. Fjölskylda með samanlagðar tekjur upp á 700 til 920 þúsund krónur á mánuði fái þannig 60 þúsund hærri barnabætur á næsta ári en ella vegna breytinganna. 50 þúsund króna eingreiðsla Auk þess verði greidd út 50 þúsund króna eingreiðsla til þeirra örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega sem eiga rétt á lífeyri á árinu fyrir 18. desember, til viðbótar við desemberuppbót sem jafnframt kemur til greiðslu í desember. Í upphafi næsta árs verði svo dregið úr „innbyrðis skerðingum“ sem skila muni tekjulægstu örorkulífeyrisþegunum tæplega 8.000 króna viðbótarhækkun á mánuði umfram fyrirhugaða hækkun upp á 3,6% sem gert var ráð fyrir í fjárlagafrumvarpi. Heildarhækkun bóta almannatrygginga til tekjulægstu örorkulífeyrisþeganna verði því tæpar 20 þúsund krónur um áramót. Þá verði ráðist í ýmsar mótvægisaðgerðir til að styrkja félagslega stöðu viðkvæmra hópa í heimsfaraldrinum og sett á laggirnar viðbragðsteymi um fjárhagsstöðu heimila með fulltrúum frá fjármálastofnunum, hagsmunasamtökum og umboðsmanni skuldara. Fréttin hefur verið uppfærð.
Efnahagsmál Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Félagsmál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Stofnandi Binance dæmdur fyrir peningaþvætti Viðskipti erlent Þarf að greiða kortareikninginn og meira til í málskostnað Neytendur Krökkunum finnst hálf hallærislegt að mamman kunni Friends þættina utan að Atvinnulíf Tekjur Apple drógust saman enn eina ferðina Viðskipti erlent Krónísk óstundvísi: Skýringar og góð ráð Atvinnulíf Matvöruverslun og íbúðir steinsnar frá Keflavíkurflugvelli Viðskipti innlent Frumkvöðlar koma saman í Kolaportinu Viðskipti innlent Röntgen Domus og Orkuhúsið fá ekki að sameinast Viðskipti innlent Viljinn tekinn til gjaldþrotaskipta Viðskipti innlent Neytendur kunna að meta Landlaxinn og Landbleikjuna Samstarf Fleiri fréttir Matvöruverslun og íbúðir steinsnar frá Keflavíkurflugvelli Röntgen Domus og Orkuhúsið fá ekki að sameinast Viljinn tekinn til gjaldþrotaskipta Spá því að stýrivextir haldist óbreyttir Bein útsending: Ársfundur SFS – Best í heimi? Mun bjóða upp á sömu flugáætlun og Bláfugl áður Grindvíkingar borgi allt að þriðjungi hærri leigu en aðrir Guðný og Sigurður Helgi til SI Tekur við stöðu sviðsstjóra Netöryggismiðstöðvar Íslands Hagnaður Íslandsbanka 5,4 milljarðar á fyrsta fjórðungi Arnar Már nýr aðstoðarforstjóri Vinnunetföng algeng leið fyrir hakkara til að brjótast inn í íslensk fyrirtæki Sjö vilja taka við af Gunnari Hagnaður Landsbankans nam 7,2 milljörðum á fyrstu þremur mánuðum ársins Frumkvöðlar koma saman í Kolaportinu Hefja sölu á íbúðum á Orkureitnum Bein útsending: Stærri styrktækifæri í mannvirkjaiðnaði Lokar Önnu Jónu og segir það mikinn létti Hagnaður Arion dróst saman um tvo milljarða Hefja úthlutun lóða í Vatnsendahvarfi Ráðherra bað um tíu milljarða króna í viðbót í arð Bein útsending: Eftirfylgni við Stöðugleikasamninginn Landa stórum sölusamningi Reginn afturkallar samrunatilkynningu við Eik Vextir verði ekki lækkaðir fyrr en í haust Hafa tryggt útgáfu íslenska tölvuleiksins Island of Winds Verðbólgan úr sex prósentum í ár í 3,5 prósent árið 2026 Vilja gera tilraunir með orkuframleiðslu í geimnum á Íslandi Reksturinn þungur í kjölfar „yfirgangs og afskipta lögreglu“ Fjármálastjóri Play segir upp Sjá meira