Sjö mörk, þrjú rauð og framlenging er Fiorentina sló Napoli úr leik Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 13. janúar 2022 19:49 Fiorentina sló Napoli úr leik í Coppa Italia í kvöld. Francesco Pecoraro/Getty Images Fiorentina vann 5-2 útisigur eftir framlengdan leik er liðið heimsótti Napoli í 16-liða úrslitum ítalska bikarsins Coppa Italia, í kvöld.
Fyrsta mark leiksins leit dagsins ljós á 41. mínútu, en það var Dusan Vlahovic sem kom gestunum í Fiorentina yfir. Forystan lyfði þó ekki lengi því Dries Mertens jafnaði metin fyrir Napoli þremur mínútum síðar. Lokamínútur fyrri hálfleiks höfðu þó ekki sungið sitt síðasta því á annarri mínútu uppbótartíma fékk Bartlomiej Dragowski að líta beint rautt spjald í liði Fiorentina. Þrátt fyrir að vera manni færri vour það gestirnir sem skoruðu næsta mark. Þar var á ferðinni Cristiano Biraghi á 57. mínútu og staðan orðin 2-1, Fiorentina í vil. Útlitið skánaði ekki fyrir heimamenn þegar um fimm mínútur voru til leiksloka því þá fékk Hirving Lozano að líta beint rautt spjald og aftur var orðið jafnt í liðum. Enn versnaði það fyrir leikmenn Napoli því Fabian fékk að líta sitt annað gula spjald á þriðju mínútu uppbótartíma og þar með rautt. Það leit því allt út fyrir að Fiorentina myndi fagna 2-1 sigri, en Andrea Petagna jafnaði metin fyrir Napoli á fimmtu mínútu uppbótartíma og tryggði liðinu framlengingu. Gestirnir í Fiorentina nýttu sér heldur betur liðsmuninn í framlengingunni og keyrðu yfir heimamenn. Lorenzo Venuti kom liðinu í 3-2 rétt fyrir hálfleik áður en Krzysztof Piatek skoraði fjórða mark liðsins á 108. mínútu. Youssef Maleh gulltryggði svo 5-2 sigur Fiorentina undir lok framlengingarinnar og liðið er þar með komið í átta liða úrslit Coppa Italia þar sem Atalanta tekur á móti þeim.
Ítalski boltinn Mest lesið Sara hrundi niður listann eftir leiðréttingar Sport Rashford: Nú er nóg komið Enski boltinn Virk sprengja úr seinni heimsstyrjöldinni undir leikvangi Mainz Fótbolti Littler stríddi stuðningsmönnum Liverpool Sport „Krakkarnir í stúkunni eru byrjaðir að taka upp á þessu líka“ Körfubolti Sjáðu og heyrðu sjónvarpslýsanda sturlast yfir Brynjólfi Fótbolti Davíð Tómasi bárust ljót skilaboð eftir leik: „Fokking mongolitið þitt“ Körfubolti Sjáðu ótrúlegan flautuþrist Þorvaldar Orra Körfubolti „Tel mjög vafasamt að klukkan hafi verið sett af stað á réttum tíma“ Körfubolti Stórleikur í Garðabænum og Fram mætir þriðju deildarliðinu Íslenski boltinn Fleiri fréttir Leikmaður Newcastle tók meirapróf Amnesty segir að FIFA rúlli út rauða dreglinum fyrir Sádana Stórleikur í Garðabænum og Fram mætir þriðju deildarliðinu Rashford: Nú er nóg komið Sjáðu og heyrðu sjónvarpslýsanda sturlast yfir Brynjólfi Berglind Björg komin með félagaskipti í Val Finnst De Bruyne betri en Gerrard og Lampard Slot staðfestir að hann vilji taka við Liverpool Virk sprengja úr seinni heimsstyrjöldinni undir leikvangi Mainz „Frábær úrslit fyrir okkur og félagið“ „Fyrst og fremst var þetta vinnuframlag frá öllum“ Ivan Toney á innkaupalista Manchester United Júlíus Magnússon með sitt fyrsta mark fyrir Fredrikstad Magnaðasta mark sumarsins á fyrsta degi þess? Einstefna í Brighton Uppgjörið: Keflavík - Breiðablik 2-1| Sami Kamel afgreiddi Blika KR fékk ungan Svía fyrir gluggalok Bikarmeistararnir örugglega áfram eftir smá hikst 350 þúsund krónur i sektir og tveir fá þriggja mánaða bann Tíu Grindvíkingar unnu í Eyjum Æfði með FH en fékk ekki samning og skipti síðan í Hauka Bikarmeistararnir bjóða frítt á völlinn „Hún á eftir að fá að skína aðeins meira“ Hamrén hafnaði 388 milljóna samningi Krókur Liverpool á móti bragði Krakkalæti og langt bann eða gult og málið dautt? Taka gamlar hetjur fram skóna í bikarnum í dag? Bayern hyggst ráða manninn sem United losaði sig við „Á sama tíma í fyrra held ég að þetta hafi verið gult“ „Skrítið að spila á móti liði sem þú varst í þegar þú varst ungur“ Sjá meira