Landsliðsmaður þjálfar Keflavík

Hörður Axel Vilhjálmsson þjálfar kvennalið Keflavíkur frá og með næstu …
Hörður Axel Vilhjálmsson þjálfar kvennalið Keflavíkur frá og með næstu leiktíð. Ljósmynd/Jóhann Helgi Sigmarsson

Hörður Axel Vilhjálmsson, landsliðsmaður í körfubolta, hefur verið ráðinn aðalþjálfari kvennaliðs Keflavíkur. Þá mun hann halda áfram að spila með karlaliði félagsins.

Karfan.is greinir frá í dag. Hörður hefur síðustu tvö ár verið aðstoðarmaður Jóns Halldórs Eðvaldssonar hjá kvennaliðinu.

Keflavík hafnaði í 5. sæti úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð og komst því ekki í úrslitakeppnina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert