Þrettán ára drengur með hendur á lofti skotinn til bana Samúel Karl Ólason skrifar 16. apríl 2021 09:36 Hér má sjá Adam Toledo með hendur á lofti, í sömu andrá og hann var skotinn til bana. AP/Lögreglan í Chicago Lögreglan í Chicago birti í gærkvöldi myndband sem sýnir lögregluþjón skjóta þrettán ára dreng til bana í lok mars. Drengurinn virðist hafa verið með hendur sínar á lofti þegar hann var skotinn.
Lögregla hafði verið kölluð til eftir að byssuskot heyrðist og kom til eftirfarar þar sem Adam Toledo reyndi að flýja undan lögregluþjóni. Hann stoppaði svo og á mjög stuttum tíma var hann skotinn til bana. Myndefnið sem opinberað var í gærkvöldi sýnir hvernig Toledo staðnæmdist við girðingu, þar sem hann virtist taka skammbyssur úr buxnastreng sínum og kasta henni á bak við girðinguna, áður en hann lyfti höndum sínum. Í sömu andrá skaut lögregluþjónninn Eric Stillman hann til bana, með einu skoti sem lenti í brjósti Toledo. Myndefnið sýnir að þegar Stillman skaut Toledo var táningurinn með tómar hendur á lofti. Í heildina liðu nítján sekúndur frá því Stillman steig úr bíl sínum þar til hann skaut Toledo til bana. Byssan fannst svo á bak við girðinguna. Í myndbandinu hér að neðan er héraðsmiðillinn ABV7 Chicago búinn að skeyta saman myndböndum sem sýna banaskotið og aðdraganda þess. Óbreytta útgáfu úr vestisvél Stillman má sjá hér á Youtubesíðu AP fréttaveitunnar. Þar má einnig sjá eftirmála banaskotsins. Toledo var af rómönskum ættum og í aðdraganda þess að lögreglan birti myndbandið hvatti Lori Lightfoot, borgarstjóri Chicago, íbúa til að sýna stillingu. Eigendur fyrirtækja í miðbæ borgarinnar settu hlera fyrir glugga fyrirtækja sína vegna mögulegra mótmæla og jafnvel óeirða. AP fréttaveitan segir nokkra tiltölulega smáa hópa hafa mótmælt við lögreglustöð í borginni og farið kröfugöngur til miðborgarinnar en umfangsmikil mótmæli hafi ekki farið fram. Lögmaður lögregluþjónsins sendi út tilkynningu þar sem hann segir banaskotið hafa verið réttmætt. Toledo hafi tekið upp byssu, litið á Stillman og snúið sér í átt að honum. Þá hafi lögregluþjónninn staðið frammi fyrir lífshættulegu ástandi og þurft að bregðast fljótt við. Lögmaður fjölskyldu Toledo segir hins vegar að myndbönd af atvikinu sýni annað. Ef Toledo hafi verið með byssu hafi hann kastað henni frá sér og hann hafi verið að fylgja skipunum Stillman. Lögregluþjóninn hafi skipað honum að sýna hendur sínar og það hafi Toledo verið að gera þegar hann var skotinn til bana.
Bandaríkin Skotárásir í Bandaríkjunum Black Lives Matter Tengdar fréttir Átta sagðir látnir í skotárás í Indianapolis Að minnsta kosti átta eru látnir eftir skotárás í Indianapolis í Bandaríkjunum og margir særðir. Vitni segjast hafa heyrt skothvelli á starfsstöðvum FedEx og einn segist hafa séð mann hleypa af sjálfvirku skotvopni. 16. apríl 2021 07:12 Lögreglumaðurinn ber ekki vitni um dauða Floyd Málsvörn Dereks Chauvin, fyrrverandi lögreglumannsins sem er ákærður fyrir að valda dauða Georges Floyd í Minneapolis í fyrra, lauk í dag án þess að hann bæri sjálfur vitni. Hann ákvað að nýta sér stjórnarskrárvarinn rétt sinn til þess að bendla sjálfan sig ekki við glæp með því að bera vitni. 15. apríl 2021 15:21 Lögreglukonan sem skaut Wright ákærð fyrir manndráp Lögreglukonan sem skaut Daunte Wright til bana eftir að hann var stöðvaður fyrir umfarðalagabrot verður ákærð fyrir manndráp. Hin 48 ára gamla Kimberly A. Potter, sem hafði starfað hjá lögreglunni í Brooklyn Center í Minnesota, segist hafa skotið Wright fyrir mistök er hann reyndi að komast á brott. 14. apríl 2021 16:54 Áfram mótmælt á götum Minneapolis Áfram var mótmælt á götum Brooklyn Center, úthverfi Minneapolis í Minnesota, í nótt eftir að hinn tvítugi Daunte Wright var skotinn til bana af lögreglunni á sunnudag. Að minnsta kosti sextíu mótmælendur voru handteknir í mótmælum næturinnar. 14. apríl 2021 07:26 Ætlaði að beita rafbyssu: „Hver þremillinn. Ég skaut hann“ Til átaka kom milli mótmælenda og lögreglu í úthverfi Minneapolis í Bandaríkjunum, annað kvöldið í röð eftir að svartur maður var skotinn til bana af lögregluþjóni. Umræddur lögregluþjónn ætlaði að taka upp rafbyssu sína en tók fyrir mistök upp alvöru byssu. 13. apríl 2021 09:47 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Innlent Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Innlent Útlagar spreyjaðir gylltir Innlent Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja Innlent „Ákveðnar efasemdir um ákveðna þætti“ Innlent Dómi Harvey Weinstein snúið við Erlent Helga Þórisdóttir komin með lágmarksfjölda meðmæla Innlent Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Innlent Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Erlent Segir borgarstjóra óttalegan vettling Innlent Fleiri fréttir Dómi Harvey Weinstein snúið við Tekur fyrir að hafa verið „hermaður Hitlers“ Maður á sextugsaldri sagður hafa stungið grunnskóladreng Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Fyrstu hergögnin eiga að berast til Úkraínu á næstu klukkustundum Segir ekki af sér þrátt fyrir njósnir aðstoðarmannsins Aðstoðarvarnarmálaráðherra ákærður fyrir mútuþægni Upptök eldsins í gömlu kauphöllinni enn ókunn Settur út af sakramentinu fyrir að stýra minningarstund um Navalní Handtóku barnunga öfgamenn eftir stunguárás í Sydney Ekki ólöglegt fyrir konur að brjóta gegn körlum Grunuð um að hafa banað tveimur börnum Vitni greinir frá ráðabruggi og lögmaður Trump fær viðvörun Öldungadeildin samþykkti 95 milljarða dala aðstoð við Úkraínu, Ísrael og Taívan Reyna að sigla um geiminn á geislum sólarinnar Lýsa yfir áhyggjum af fregnum af fjöldagröfum á Gasa Fá aftur gögn frá tæplega hálfrar aldar gömlu geimfari Umdeildur flutningur á hælisleitendum til Rúanda samþykktur Starfsmaður hægrijaðarflokks handtekinn fyrir njósnir fyrir Kína Gera alvarlegar athugasemdir við verðlaunakerfi Tik Tok Tugir handteknir á mótmælum háskólanema gegn aðgerðum Ísraels Undirbúa stærðarinnar sendingar til Úkraínu Engin sönnunargögn bendla UNRWA við árásina Hættu við umfangsmiklar árásir á Íran Sakaði Trump um að reyna að spilla kosningunum 2016 Dæmdu samskiptastjóra Meta fyrir að „verja hryðjuverk“ Modi sakaður um múslimaandúð í miðjum kosningum Dregur úr vinnu og verkefnum Sjá meira
Átta sagðir látnir í skotárás í Indianapolis Að minnsta kosti átta eru látnir eftir skotárás í Indianapolis í Bandaríkjunum og margir særðir. Vitni segjast hafa heyrt skothvelli á starfsstöðvum FedEx og einn segist hafa séð mann hleypa af sjálfvirku skotvopni. 16. apríl 2021 07:12
Lögreglumaðurinn ber ekki vitni um dauða Floyd Málsvörn Dereks Chauvin, fyrrverandi lögreglumannsins sem er ákærður fyrir að valda dauða Georges Floyd í Minneapolis í fyrra, lauk í dag án þess að hann bæri sjálfur vitni. Hann ákvað að nýta sér stjórnarskrárvarinn rétt sinn til þess að bendla sjálfan sig ekki við glæp með því að bera vitni. 15. apríl 2021 15:21
Lögreglukonan sem skaut Wright ákærð fyrir manndráp Lögreglukonan sem skaut Daunte Wright til bana eftir að hann var stöðvaður fyrir umfarðalagabrot verður ákærð fyrir manndráp. Hin 48 ára gamla Kimberly A. Potter, sem hafði starfað hjá lögreglunni í Brooklyn Center í Minnesota, segist hafa skotið Wright fyrir mistök er hann reyndi að komast á brott. 14. apríl 2021 16:54
Áfram mótmælt á götum Minneapolis Áfram var mótmælt á götum Brooklyn Center, úthverfi Minneapolis í Minnesota, í nótt eftir að hinn tvítugi Daunte Wright var skotinn til bana af lögreglunni á sunnudag. Að minnsta kosti sextíu mótmælendur voru handteknir í mótmælum næturinnar. 14. apríl 2021 07:26
Ætlaði að beita rafbyssu: „Hver þremillinn. Ég skaut hann“ Til átaka kom milli mótmælenda og lögreglu í úthverfi Minneapolis í Bandaríkjunum, annað kvöldið í röð eftir að svartur maður var skotinn til bana af lögregluþjóni. Umræddur lögregluþjónn ætlaði að taka upp rafbyssu sína en tók fyrir mistök upp alvöru byssu. 13. apríl 2021 09:47