Brimbrettakappi setti heimsmet

Blake Johnston á brimbrettinu.
Blake Johnston á brimbrettinu. AFP/Saeed Khan

Ástralinn Blake Johnston setti nýtt heimsmet með því að standa á brimbretti í rúmar 30 klukkustundir.

Blake Johnston ræðir við fjölmiðla eftir að hafa slegið metið.
Blake Johnston ræðir við fjölmiðla eftir að hafa slegið metið. AFP

Johnston, sem er fertugur og fyrrverandi atvinnumaður í íþróttinni, grét eftir að hafa slegið met Suður-Afríkubúans Josh Enslin upp á 30 klukkustundir og 11 mínútur.

Mörg hundruð stuðningsmenn fylgdust með kappanum leika listir sínar á Cronulla-strönd í borginni Sydney. Hann þakkaði fyrir sig þegar hann fór í eina af fáum matar- og drykkjarpásum sem voru leyfilegar, áður en hann fór aftur út í sjóinn til að bæta heimsmetið enn frekar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert