Eldstöðin Grímsvötn sett á appelsínugula viðvörun Kristján Már Unnarsson skrifar 6. desember 2021 10:33 Séð ofan í Grímsvötn í gær. Vísir/RAX Veðurstofa Íslands hefur hækkað viðvörunarstig vegna Grímsvatna úr gulum lit í appelsíngulan lit fyrir alþjóðflug, sem táknar vaxandi líkur á eldgosi. Þetta var gert klukkan níu í morgun eftir jarðskjálftahrinu í eldstöðinni fyrr um morguninn.
Stærsti skjálftinn mældist 3,6 stig og varð klukkan 17 mínútur yfir klukkan sex. Honum fylgdu síðan tíu skjálftar milli klukkan sex og átta í morgun. „Þetta virðast ekki vera ísskjálftar heldur í eldstöðinni sjálfri,“ segir Einar Bessi Gestsson, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofunni. Enginn gosórói sést þó enn á mælum. „En við erum með augun límd á Grímsvötnum. Það er lítið annað að gera en að bíða og sjá,“ segir Einar Bessi. Appelsínugulur litur í litakóða Alþjóðaflugmálastofnunarinnar þýðir: „Eldstöðin sýnir aukna virkni og vaxandi líkur á eldgosi.“ Svona líta eldstöðvar Íslands núna út á litakorti Veðurstofunnar fyrir alþjóðaflug.Veðurstofa Íslands Þrjár íslenskar eldstöðvar eru núna litamerktar umfram venjulegt ástand; Grímsvötn á appelsínugulum lit og Fagradalsfjall á Reykjanesi og Askja á gulum lit. Um gulan lit segir: "Eldstöðin sýnir merki um virkni, umfram venjulegt ástand. Eða, eftir að virknin hefur verið lækkuð frá hærra stigi: Umbrot hafa minnkað markvert en vel er fylgst með, ef vera kynni að þau aukist á ný." Efsta stig litakóðans, rautt, táknar: „Eldgos er yfirvofandi eða hafið – líklegt er að aska berist upp í lofthjúpinn. Eða: Eldgos stendur yfir og veruleg aska berst upp í andrúmsloftið."
Grímsvötn Eldgos og jarðhræringar Almannavarnir Fréttir af flugi Tengdar fréttir Skjálfti 3,6 að stærð í Grímsvötnum Skjálfti 3,6 að stærð varð í Grímsvötnum klukkan 6:16 í morgun. Nokkrir eftirskjálftar hafa fylgt í kjölfarið, sá stærsti 2,3 að stærð. Ekki hefur mælist gosórói á svæðinu. 6. desember 2021 07:28 Hlaupið náð hámarki og á hraðri niðurleið: Sjáðu myndir RAX frá Grímsvötnum Íshellan í Grímsvötnum hefur sigið um 75 metra og hlaupið þar náði að öllum líkindum hámarki liðna nótt. Ragnar Axelsson ljósmyndari, þekktur undir nafninu RAX, flaug yfir svæðið í gær og myndaði sprungur ofan í Grímsvötnum, undir klettabeltum við skálana á Grímsfjalli. 5. desember 2021 21:15 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Enok ákærður fyrir að fleygja manni niður tröppur og berja annan Innlent Öllum aðgerðum aflýst og flugfarþegar geta andað léttar Innlent Fyrsta flugið til Íslands var hluti heimsviðburðar Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Gosið gæti þúsundfaldast við nýjan atburð Innlent Annar hvirfilbylurinn í Oklahoma á rúmum mánuði Erlent „Ég sé engar staðreyndavillur í þessum þætti“ Innlent Skelfilegt að þurfa grípa til hópuppsagna Innlent Samþykktu tillögu Sjálfstæðisflokksins Innlent Atburðirnir fyrir botni Miðjarðarhafs því sem næst „óraunverulegir“ Innlent Fleiri fréttir Fyrsta flugið til Íslands var hluti heimsviðburðar Öllum aðgerðum aflýst og flugfarþegar geta andað léttar Bein útsending frá samstöðutónleikum í Háskólabíó í opinni dagskrá Skelfilegt að þurfa grípa til hópuppsagna Nýtt sanngirnisbótafrumvarp gæti komið fram Atburðirnir fyrir botni Miðjarðarhafs því sem næst „óraunverulegir“ Engri kirkju hollt að vera of nálægt ríkinu Samþykktu tillögu Sjálfstæðisflokksins Reynt til þrautar að ná samningum áður en aðgerðir skella á Júróvisíon í skugga stríðsreksturs og sársaukafullar uppsagnir Enok ákærður fyrir að fleygja manni niður tröppur og berja annan Undirbúa hópuppsögn hjá Grindavíkurbæ Töluverð óvissa um framvindu jarðhræringanna Gæsluvarðhald yfir manninum framlengt „Við þurfum ekki að verjast neinu“ „Ég sé engar staðreyndavillur í þessum þætti“ Aðstæður fyrir stýrivaxtalækkun á morgun Gosið gæti þúsundfaldast við nýjan atburð Séra Guðrún kjörin biskup Íslands Segja „alvarlegar staðreyndavillur“ í umfjöllun Kastljóss SA og SSF skrifuðu undir langtímakjarasamning Agnes segir nýjan biskup taka við annarri kirkju en hún tók við Stýrivextir, Eurovision og biskupskjör „Skítkastið var ógeðslegt“ Fiskadauði í einni af mestu sjóbirtingsveiðiám landsins Valtýr ráðinn yfirlæknir Ný nálgun Samfylkingar í orkumálum konfekt í eyrum Jóns Vilja tryggja öryggi starfsfólks í vegavinnu „Massíf slysaslepping á vondu frumvarpi“ Stillir viðtækið á alheimsdögunina Sjá meira
Skjálfti 3,6 að stærð í Grímsvötnum Skjálfti 3,6 að stærð varð í Grímsvötnum klukkan 6:16 í morgun. Nokkrir eftirskjálftar hafa fylgt í kjölfarið, sá stærsti 2,3 að stærð. Ekki hefur mælist gosórói á svæðinu. 6. desember 2021 07:28
Hlaupið náð hámarki og á hraðri niðurleið: Sjáðu myndir RAX frá Grímsvötnum Íshellan í Grímsvötnum hefur sigið um 75 metra og hlaupið þar náði að öllum líkindum hámarki liðna nótt. Ragnar Axelsson ljósmyndari, þekktur undir nafninu RAX, flaug yfir svæðið í gær og myndaði sprungur ofan í Grímsvötnum, undir klettabeltum við skálana á Grímsfjalli. 5. desember 2021 21:15