300 milljóna gjaldþrot Orange Project Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 7. apríl 2021 17:14 Orange Project var fyrst til húsa að Ármúla 4 og 6, þar sem kaffihús var líka rekið. Þar voru höfuðstöðvar fyrirtækisins sem var með sex starfsmenn þegar kórónuveirufaraldurinn hófst. Gjaldþrot skrifstofuhótelsins Orange Project ehf. sem var með starfsemi í Reykjavík, Kópavogi og á Akureyri nam 329 milljónum króna. Ekkert fékkst upp í lýstar kröfur í þrotabúið. Þetta kemur fram í Lögbirtingablaðinu í dag.
Tómas Hilmar Ragnarz, stofnandi og eigandi félagsins, tjáði Viðskiptablaðinu í desember að tap í dómsmáli gegn Reginn, leigusala fyrirtækisins, hefði gert útslagið. „Viðskiptin fóru niður hjá okkur um tæp 60% á árinu vegna Covid en ekki nægilega mikið til að komast inn í björgunarpakka stjórnvalda,“ sagði Tómas Hilmar við Viðskiptablaðið í desember. Reginn hefði neitað að semja um lækkun í verði í ljósi kórónuveirufaraldursins eða koma á annan hátt til móts við Orange Project. Aðrir leigusalar hafi sýnt aðstæðum meiri skilning. Tómas tjáði Fréttablaðinu síðasta sumar að Reginn hefði einhliða sagt upp leigusamningi og sett sig beint í samband við viðskiptavini Orange Project og boðið sambærileg kjör. Að lokum hafi deilurnar farið fyrir dóm þar sem málið hafi tapast. Orange Project hóf starfsemi í september 2014. Fyrst með sautján skrifstofurými og tvö fundarherbergi. Tveimur árum síðar voru rýmin orðin 110 og fundarbergin fimm sinnum fleiri. Að neðan má sjá kynningu á fyrirtækinu frá árinu 2016. Árið 2017 gerði fyrirtækið samning við alþjóðlega fyrirtækið Regis, stærsta skrifstofuhótel í heiminum. Þannig hefði fyrirtækið verið komið á heimskortið og getað leigt skrifstofur um allan heim. Í framhaldinu var fyrirtækinu breytt hér á landi og kennt við Regus til jafns við Orange Project. „Það má líkja þessu við það að reka Gistiheimilið á Baldursgötu en setja síðan Hilton skiltið á húsið. Það breytast allar forsendur fyrir rekstrinum. Nú verða allt í einu 3.500 manns að selja okkar vöru,“ sagði Tómas við Viðskiptablaðið fyrir tæpum fjórum árum. Reksturinn reyndist hins vegar afar erfiður í heimsfaraldrinum og varð fyrirtækið gjaldþrota í desember. Regus starfar þó áfram og er með skrifstofukjarna á þriðju hæð í Höfðatorgi. Tómas stýrir fyrirtækinu.
Gjaldþrot Reykjavík Kópavogur Akureyri Tengdar fréttir Parlogis og Orange Project hefja samstarf Samstarfið gerir fyrirtækjunum kleift að bjóða smærri heildsölum og sölufyrirtækjum fyrsta flokks þjónustu hvað varðar húsnæðislausnir, vörustjórnun og dreifingu. 24. október 2016 13:03 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Kakóverð aldrei hærra og verðhækkanir á súkkulaði rétt að byrja Neytendur Meirihluti óánægður með áform Landsbankans Viðskipti innlent Hvað er opið um páskana? Neytendur Tuttugu milljóna hámark sett á einstaklinga Viðskipti innlent Íslendingar duglegastir í heimi að kaupa Samsonite-ferðatöskur Samstarf Stjörnugrís sektaður fyrir íslenskan fána Neytendur Rússar flytja inn eldsneyti eftir drónaárásir Viðskipti erlent Páskaeggin frá Nóa Síríus vinsælust Neytendur Trump græddi milljarða dala í dag Viðskipti erlent Súkkulaði frá Nóa hækkar mest á meðan Freyja lækkar Neytendur Fleiri fréttir Meirihluti óánægður með áform Landsbankans Tuttugu milljóna hámark sett á einstaklinga Lok, lok og læs hjá Gló Hefð fyrir sumargjöf í Íslandsbanka Hundrað þúsund kall á haus Ísland ekki nógu spennandi áfangastaður fyrir Ryanair Yfirmaður hjá Alvotech fékk 300 milljóna kaupauka Ráðinn nýr lögfræðingur hjá ÖBÍ Húsnæðisliðnum um að kenna en von á breytingum Fundar með Bankasýslunni í dag Bankasýslan þögul sem gröfin Festi vill sættast við Samkeppniseftirlitið Verðbólga eykst á ný Deildar meiningar um hvað sagt var í símtali Segir skilið við SVÞ eftir sextán ár í starfi Ætlar ekki að tjá sig fyrir aðalfund Landsbankans Skál flytur úr mathöllinni Fyrirhuguð löggjöf muni ekki laga leigumarkað í lamasessi Telja sig hafa gert nóg til að upplýsa Bankasýsluna Bankaráð Landsbankans svarar fyrir sig Opna nýja frjósemismiðstöð á haustmánuðum Fjárfestar líta í síauknum mæli til mikilvægis kynjajafnréttis Leiðinlegt með loðnuna en svona er þetta bara Pizzan reynir að eigna sér Megaviku Domino's Ráðinn framkvæmdastjóri úr hópi 27 umsækjenda Jón hættir sem stjórnarformaður Sýnar Eydís og Þorvaldur til Genís Setur 100 milljónir í að leiðrétta erlendan fréttaflutning um eldgosin Bein útsending: Orkuöryggi – Hverju getum við áorkað? Hitnar í fasteignamarkaði vegna íbúðakaupa Grindvíkinga Sjá meira
Parlogis og Orange Project hefja samstarf Samstarfið gerir fyrirtækjunum kleift að bjóða smærri heildsölum og sölufyrirtækjum fyrsta flokks þjónustu hvað varðar húsnæðislausnir, vörustjórnun og dreifingu. 24. október 2016 13:03