Leicester City tapaði í kvöld óvænt á heimavelli fyrir Fulham 1:2 í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.
Fulham sem er 17. sæti deildarinnar hafði aðeins unnið einn leik í deildinni þegar kom að leik liðanna í kvöld. Liðið er nú með 7 stig eftir 10 leiki en Leicester er með 18 stig í 4. sæti.
Fulham skoraði tvívegis í fyrri hálfleik og lagði grunninn að sigrinum. Ademola Lookman skoraði á 30. mínútu og Ivan Cavaleiro bætti við marki úr vítaspyrnu á 38. mínútu.
Varamaðurinn Harvey Barnes minnkaði muninn á 86. mínútu fyrir Leicester en fleiri mörk voru ekki skoruð.