Átak til stuðnings dómurum: „Ertu vanur því að garga á fólk?“ Sindri Sverrisson skrifar 26. maí 2023 15:45 Dómarar þurfa oft að taka umdeildar ákvarðanir en KSÍ berst nú fyrir meiri jákvæðni í garð þeirra. VÍSIR/HULDA MARGRÉT Knattspyrnusamband Íslands hefur hrundið af stað átaki vegna hegðunar fólks í garð dómara, til að vekja athygli á störfum þeirra og mikilvægi fyrir fótboltann.
Þjóðþekktir Íslendingar koma fram í myndböndum í tengslum við átakið, þar á meðal forseti Íslands, herra Guðni Th. Jóhannesson, og fjölmiðlamaðurinn Guðmundur Benediktsson sem spyr: „Ertu vanur því að garga á fólk? Í vinnunni? Í búðinni? Í bíó? Eða á fjölskylduna? Af hverju heldur þú að það sé í lagi á fótboltaleik? Ekki tapa þér.“ Skammt er síðan að KSÍ greindi frá því að tveimur dómurum á Íslandi hefðu á síðustu vikum borist líflátshótanir. Önnur hótunin barst í gegnum talskilaboð en í hinu tilvikinu missti áhorfandi stjórn á skapi sínu og ruddist inn á völlinn, og að dómaranum. Markmið átaksins sem KSÍ stendur nú fyrir er að hvetja fólk til jákvæðrar hegðunar í garð dómara, og/eða að bæta hegðun sína og láta af neikvæðri hegðun í garð dómara, bæði í meistaraflokki og yngri flokkum. Einnig er ætlunin að fjölga dómurum en á vef KSÍ segir að mörg félög finni fyrir því að nýliðun í stéttinni sé mikil áskorun, og er neikvætt viðhorf í garð dómara talið hafa þar talsvert að segja. Í myndböndunum frá KSÍ þakka hins vegar þjóðþekktir Íslendingar dómurum fyrir þeirra störf, og hvetja fólk til að hætta að tapa sér.
KSÍ Íslenski boltinn Mest lesið Stuðningurinn ómetanlegur: „Farið í dýpstu leyndarmálin“ Sport Rekinn þrátt fyrir að vera tilnefndur sem þjálfari ársins Enski boltinn Stórveldi með gjörólíka hugmyndafræði berjast um sæti í úrslitum Fótbolti „Dómur þarna í restina sem ákveður úrslitin“ Körfubolti Sjáðu Hummels gera það sem Mbappé og félögum tókst ekki Fótbolti Ræðir veru sína í rússnesku fangelsi í nýrri bók Körfubolti Aþena upp í Subway-deildina Körfubolti Gummi Ben og félagar tímamældu leiktafir KR-ingsins Íslenski boltinn „Gamaldags boxbardagi frá fyrstu mínútu“ Körfubolti Gat ekki staðið upp til að taka við bikarnum Sport Fleiri fréttir Gummi Ben og félagar tímamældu leiktafir KR-ingsins Sjáðu Hummels gera það sem Mbappé og félögum tókst ekki Stórveldi með gjörólíka hugmyndafræði berjast um sæti í úrslitum Rekinn þrátt fyrir að vera tilnefndur sem þjálfari ársins „Höfum vaxið með hverjum leik“ Dortmund í úrslit eftir sigur í París Telja að Man United hafi saknað leiðtogahæfileika Martínez Þurfa leyfi til að taka þátt í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð Arnar í tveggja leikja bann Aðeins einn uppalinn Valsmaður í Bestu deild karla „Maður hefur verið milli tannanna á fólki síðan maður var ungur“ „Tveir Víkingar? Ég er bara hissa“ Adam hundfúll og Arnar beint í símann Vatnstjónið vísar Stólum til Akureyrar Forest í bullandi fallhættu vegna bulls í fjármálum Napoli í kapphlaupið um Albert Segir að Viðar hafi ekki mætt á æfingu á leikdegi Segir að Casemiro hafi verið aðhlátursefni gegn Palace Sjáðu aukaspyrnumark Gylfa, umdeildan rangstöðudóm og rauðu spjöldin „Síðasti naglinn í kistu Ten Hag“ „Arnar fór langt yfir strikið“ en nafni hans oftar með dónaskap Bielsa ætlar að velja áhugamann í landsliðshóp Úrúgvæ Ten Hag: Leikmennirnir hefðu átt að halda áfram að berjast líkt og stuðningsfólkið „Segir þeim að hætta þessu fokking rugli“ „Höfum engu að tapa núna“ Hákon Arnar fékk gult þegar Lille henti frá sér unnum leik Uppgjör, viðtöl og myndir: Breiðablik - Valur 2-3 | Manni færri héldu gestirnir út Crystal Palace lék sér að Man United Van Dijk vill hjálpa til við að skrifa næsta kafla Liverpool Sara Björk hafði betur gegn Alexöndru Sjá meira