Faðmaði öspina áður en hún var felld Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 14. september 2021 23:16 Ragnhildir Sigurðardóttir er mjög óánægð með ákvörðunina um að fella aspirnar. Vísir/Magnús Hlynur Í kvöld hófst vinna við að fella níu aspir við Austurveg á Selfoss í nafni umferðaröryggis. Óánægður bæjarbúi faðmaði eina öspina áður en hún var felld.
Greint var frá því í dag að til stæði að fella níu tignarlegar aspir á Selfossi. Markmiðið með þessu var sagt vera aukið umferðaröryggi. Bæjaryfirvöld væru að bregðast við ábendingu frá lögreglu um að aspirnar skerði vegsýn fyrir ökumenn stórra ökutækja við gangbrautir. Auk þess var talið að aspirnar sköpuðu hættu fyrir gangandi vegfarendur þar sem þær byrgðu sýn á gangbrautir. Óánægju hefur gætt með þessa ákvörðun bæjaryfirvalda og voru nokkrir bæjarbúir mættir á staðinn þegar aspirnar voru sagaðar niður. Þar á meðal var Ragnhildur Sigurðardóttir sem ræddi við Sunnlenska á staðnum í kvöld. Hún faðmaði eina öspina eins og sjá má hér fyrir ofan. „Ég var bara að faðma tréð og þakka því fyrir að vera hérna. Ég er svo sár yfir því að það sé verið að taka þessi tré sem eru búin að þjóna okkur vel, gefa okkur súrefni og skjól og hreinsa óhreinindin frá bílunum. Þau gegna mjög mikilvægu hlutverki,“ sagði Ragnhildur. Hún segist mjög óánægð með ákvörðunina um að láta fjarlægja aspirnar. „Ég held að bæjarbúar hafi ekki vitað af þessu, ég frétti þetta bara í morgun og ég er svo hissa, ég á ekki orð. Þannig að ég vildi kveðja tréð og þakka því fyrir, ég er svo ofboðslega mikill náttúruunnandi og ég veit að trén hafa tilfinningar,“ sagði Ragnhildur í samtali við Sunnlenska en lesa má frétt miðilsins um málið hér. Vinna við að fella aspirnar stóð yfir í kvöld.Vísir/Magnús Hlynur Sunnlenska ræddi einnig við Björgvin Örn Eggertsson, skógfræðing á Selfossi, sem hefði frekar viljað að tréin yrðu snyrt, ef markmiðið væri að bæta sjónlínu á svæðinu. „Á sínum tíma, þegar þessi tré voru sett niður, þá virtist hægjast á umferðinni. Ég held að núna þegar við förum að opna þetta þá fáum við aðeins betri sjónarhorn á gangbrautina en ég held að með góðri trjásnyrtingu, og með því að fella kannski eitt til tvö tré, en ekki níu, þá hefðum við náð mjög góðum árangri,“ hefur Sunnlenska eftir Björgvini.
Samgöngur Árborg Skógrækt og landgræðsla Aspir felldar á Austurvegi Tengdar fréttir Fella níu aspir á Austurvegi á Selfossi: „Það er eðlilegt að fólki bregði“ Níu tignarlegar aspir verða felldar á Austurvegi á Selfossi í kvöld. Markmiðið með þessu er að auka umferðaröryggi í götunni. Bæjarstjóri segir einhverja óánægða með ákvörðunina og að eðlilegt sé að einhverjum bregði við fréttir af framkvæmdinni. 14. september 2021 14:18 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Innlent Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja Innlent Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Erlent Segir borgarstjóra óttalegan vettling Innlent Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Innlent Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Erlent Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Erlent „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Innlent Ætlaði að koma upp um barnaníðing en lenti í klóm hans Innlent Ræða mest málefni íslenskunnar á fundum enskumælandi ráðs Innlent Fleiri fréttir Eiríkur og Bjarni takast á um nefnd um íslenska tungu Ræða mest málefni íslenskunnar á fundum enskumælandi ráðs Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Segir borgarstjóra óttalegan vettling Vilja taka upp auðlindagjald að hætti Norðmanna „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Stefnir í sólríkan og hlýjan sumardag fyrsta víða um land Eigendur sjókvíaeldis þurfa ekki að greiða auðlindagjald Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Veturinn sá kaldasti síðan 1999 Vill rjúfa framkvæmdastopp í orkumálum Kári Stefánsson, ákall um vaxtalækkun og hinsegin list Skemmtiferðaskip um tíu metrum frá strandi við Viðey Kínversk ferðaskrifstofa mátti sín lítils gegn TM Komu litlum fiskibáti til bjargar Þyrlan í loftið vegna slasaðs vélsleðamanns Ætlaði að koma upp um barnaníðing en lenti í klóm hans Alvarlegt umferðarslys í Eyjafirði Segir lág laun leikskólakennara mýtu Alltof mörg börn misstu af bólusetningu við mislingum Leyfisveitingin ekki brot á EES-samningnum Með 19 þúsund MDMA-töflur í ferðatöskunni Hafi líka reynt að bana eldri syni sínum Steinunn Ólína segir landráðamál í uppsiglingu Stofnaði lífi átta manna í hættu „í ábataskyni og á ófyrirleitinn hátt“ Fleiri löggur á leiðinni Seðlabankinn geti ekki annað en lækkað vexti Krefja Seðlabankann um vaxtalækkun Eldur í gámi við Sundabakka Sjá meira
Fella níu aspir á Austurvegi á Selfossi: „Það er eðlilegt að fólki bregði“ Níu tignarlegar aspir verða felldar á Austurvegi á Selfossi í kvöld. Markmiðið með þessu er að auka umferðaröryggi í götunni. Bæjarstjóri segir einhverja óánægða með ákvörðunina og að eðlilegt sé að einhverjum bregði við fréttir af framkvæmdinni. 14. september 2021 14:18