„Mín tilfinning að fólki sé bara sama“ Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 2. mars 2021 13:42 Jónína Margrét ákvað hefja heimakennslu vegna einkenna tólf ára dóttur hennar sem rakin eru til myglu. Stelpan hafði verið orkulaus og verkjuð um nokkurt skeið. Núna er hún hins vegar heilsuhraust og farin að stunda íþróttir aftur. Vísir/Arnar Halldórsson Foreldrar barna í Fossvogsskóla segja traust þeirra til Reykjavíkurborgar brostið í kjölfar upplýsinga- og aðgerðarleysis vegna myglu sem hefur fundist í skólanum. Foreldrar eru sumir hættir að senda börn sín í skólann.
Starfsfólk og nemendur í Fossvogsskóla kvörtuðu undan einkennum myglu árið 2019. Í framhaldinu voru tekin sýni og í ljós kom að skólinn var verr farinn af myglu en áður hafði verið talið. Foreldrar sendu frá sér yfirlýsingu í gær þar sem þeir segja traustið brostið. Farið er fram á að fundin verði varanleg lausn og að rót vandans verði áfram leitað. Þá vilja þeir verið upplýstir um gang mála sem hafi hingað til ekki verið gert. Fá engar upplýsingar Jónína Margrét Sigurðardóttir, foreldri barns í Fossvogsskóla, vísar til svartrar skýrslu um stöðuna í skólanum þar sem fram kemur að varasamar sveppategundir hafi fundist. Skýrslan var gefin út í desember en birt síðastliðinn föstudag. „Núna nýverið hafa fulltrúar borgarinnar, Skúli Helgason og Helgi Grímsson, komið í fréttum og talað um að þeir vilji hafa gott samtal og samstarf á milli borgarinnar og foreldra. En svo bara strax á föstudaginn er það rofið. Þá kom í rauninni fram þessar niðurstöður úr síðustu skýrslu og við foreldrar höfum enn ekki fengið neinar upplýsingar frá borginni um það,“ segir Jónína. Mygla greindist í Fossvogsskóla í byrjun árs 2019. Farið hefur verið í miklar framkvæmdir sem hafa kostað í kringum 500 milljónir. Myglan er hins vegar enn að greinast. Vísir/Vilhelm Barnið komið í heimakennslu Jónína segir að foreldrar hafi ítrekað kallað eftir viðbrögðum. „Í lengri tíma var ekki tekið mark á okkur, það var ekki hlustað. Mín tilfinning er sú að fólki sé bara sama.“ Sjálf vill hún ekki senda dóttur sína í skólann en hún fær félagsskapinn úti í frímínútum og annars staðar en inni í skólabyggingunni. „Dóttir mín fer ekki í skólann. Þetta er á aðra viku sem hún fer ekki í skólahúsnæðið. Hún fer í frímínútur og leikfimi og sund,“ segir hún. „Hún hefur fengið rosaleg höfuðverkjaköst, ég þurfti að sækja hana í skólann þar sem hún kastaði upp af verkjum, það hefur liðið yfir hana hérna heima af verkjum. Hún liggur í sófanum mikið algjörlega uppgefin af heilaþoku og fær verki í alla útlimi. Svona sem dæmi,“ segir Jónína, en fram að því hafði dóttir hennar verið heilsuhraust. Dóttir hennar er nú loks að jafna sig, eftir að hafa ekki mætt í skólann í um hálfan mánuð, að sögn Jónínu. „Hún hefur núna orku til að leika sér, vera með vinum sínum. Vera hún.“ Rætt var við Jónínu Margréti í hádegisfréttum Bylgjunnar. Hlusta má á fréttatímann í spilaranum hér fyrir neðan.
Mygla í Fossvogsskóla Reykjavík Skóla - og menntamál Grunnskólar Tengdar fréttir Þrífa á Fossvogsskóla sem aldrei fyrr Náttúrufræðistofnun Íslands telur líklegt að umfangsmiklar framkvæmdir á liðnum misserum til að uppræta leka- og rakavandamál í Fossvogsskóla hafi borið árangur, m.a. með því að fjarlægja skemmt byggingarefni. 2. október 2020 12:29 Sár og reið út í Reykjavíkurborg vegna myglu Barn í Fossvogsskóla finnur enn fyrir einkennum myglu þrátt fyrir að úrbætur hafi verið gerðar á húsnæði skólans. 26. september 2020 21:59 Ástand allra skólanna í borginni verði metið Uppsöfnuð viðhaldsþörf í skólum Reykjavíkurborgar nam þremur milljörðum króna fyrir tveimur árum. Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins vill að nú verði farið í markvissa úttekt og endurskoðun á fjármálaáætlun borgarinnar. 3. júlí 2019 07:15 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Hundrað milljarða fjárfesting í uppnámi Innlent Beðnir um að senda börnin sín með net vegna flugnafaraldurs Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Bréf Eggerts kom flatt upp á bæjarstjórnarmenn Innlent Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Erlent Halla þótti standa sig best Innlent Gjörbreytt bílpróf en segja hvergi slegið af kröfum Innlent „Köld vatnsgusa“ framan í skólasamfélagið í Laugardal Innlent Þetta er vitað um árásarmanninn Erlent Hæstiréttur segir tíma í flugvél vera vinnutíma Innlent Fleiri fréttir Um 800 börn bíða eftir leikskólaplássi í Reykjavík Meinleysisgrey sem séu lífríkinu afar mikilvæg Sjö smáskjálftar við Sýlingarfell og Veðurstofan fylgist vel með „Þetta reddast“ voru fyrstu orðin sem hann lærði Lögreglan þurfi nauðsynlega auknar rannsóknarheimildir Mikill meirihluti hlynntur dánaraðstoð Fátt ef nokkuð stöðvar eldislaxinn Segir seinlæti First Water stórfurðulegt Hæstiréttur segir tíma í flugvél vera vinnutíma Vill ræða brottvísun til Nígeríu í nefnd: „Skelfileg ásýnd á þessu máli“ Gjörbreytt bílpróf en segja hvergi slegið af kröfum Fagna framfaraskrefi ráðherra en vilja afnema tilvísanakerfið Þórdís í sendinefnd til Georgíu vegna umdeildra laga Maðurinn fannst heill á húfi Hundaskítur fyrir utan kosningamiðstöð Baldurs vekur spurningar Skilur uppnám skólasamfélagsins í Laugardal en horfa þurfi á staðreyndir Bréf Eggerts kom flatt upp á bæjarstjórnarmenn Flugvél Icelandair þurfti að snúa við Píratar hafa áhyggjur af skorti á eftirliti með lögreglu Úr 256 pakkningum á mánuði upp í sex þúsund Útlendingalög, tilvísanir og skólabygging í Laugardal Fólk setji símana á akstursstillingu til að koma í veg fyrir slys Hundrað milljarða fjárfesting í uppnámi Beðnir um að senda börnin sín með net vegna flugnafaraldurs „Nú verður þú bara að spyrja Bjarna“ Halla þótti standa sig best Ísland hástökkvari á Regnbogakortinu Stefni í endurtekningu á síðasta vori Nýir fatasöfnunargámar á leið til landsins Forsetaframbjóðendur mæta í kappræður á Stöð 2 og Vísi Sjá meira
Þrífa á Fossvogsskóla sem aldrei fyrr Náttúrufræðistofnun Íslands telur líklegt að umfangsmiklar framkvæmdir á liðnum misserum til að uppræta leka- og rakavandamál í Fossvogsskóla hafi borið árangur, m.a. með því að fjarlægja skemmt byggingarefni. 2. október 2020 12:29
Sár og reið út í Reykjavíkurborg vegna myglu Barn í Fossvogsskóla finnur enn fyrir einkennum myglu þrátt fyrir að úrbætur hafi verið gerðar á húsnæði skólans. 26. september 2020 21:59
Ástand allra skólanna í borginni verði metið Uppsöfnuð viðhaldsþörf í skólum Reykjavíkurborgar nam þremur milljörðum króna fyrir tveimur árum. Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins vill að nú verði farið í markvissa úttekt og endurskoðun á fjármálaáætlun borgarinnar. 3. júlí 2019 07:15