Ánægjulegt að nýgengið sé á niðurleið en hefur áhyggjur af opnun líkamsræktarstöðva Sunna Kristín Hilmarsdóttir og Nadine Guðrún Yaghi skrifa 21. október 2020 12:14 Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, embætti landlæknis og Landspítali bjóða til upplýsingafundar fyrir blaðamenn vegna Kórónuveirunnar Foto: Vilhelm Gunnarsson/Vilhelm Gunnarsson
Tæplega helmingur þeirra 45 sem greindust með kórónuveiruna innanlands í gær var í sóttkví. Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, segir ánægjulegt að nýgengi smits sé á niðurleið. Hann hefur þó áhyggjur af því að smituðum geti fjölgað aftur í ljósi opnunar hjá líkamsræktarstöðvum. „Staðan er þannig að nýgengið er að fara niður og við sjáum að kúrvan er að fara niður en þetta getur alveg gengið svona upp og niður á milli daga. En það er greinilega niðursveifla í þessu og það er mjög ánægjulegt,“ segir Þórólfur í viðtali við fréttastofu. Hann telur að þær aðgerðir sem gripið hafi verið til á síðustu tveimur til þremur vikum og svo samtakamáttur þjóðarinnar séu að skila árangri. Það sé einnig ánægjulegt. „Við getum gert þetta ef við tökum höndum saman“ „Og sýnir það að við getum gert þetta ef við tökum höndum saman. Við þurfum bara að halda áfram til þess að ná þessu neðar niður á sama tíma og við förum kannski eitthvað að slaka á,“ segir Þórólfur. Aðspurður hvort hann búist við því að tölur yfir fjölda smitaðra fari hækkandi næstu daga frá því sem nú er segir hann það alveg geta gerst. „Það getur komið svona hópsýking upp einhvers staðar þar sem tölurnar fara upp eins og þessi hópsýking sem varð þarna í bátnum fyrir vestan þannig að það getur ýmislegt gerst sem gerir það að verkum að tölurnar fara upp aftur. Það skyldi maður aldrei útiloka en við vonum bara að það gerist ekki.“ Ósáttir við að vera áfram um borð með hinum sýktu Báturinn sem Þórólfur vísar til er frystiskipið Júlíus Germundsson frá Ísafirði. 19 af 25 áhafnarmeðlimum eru með Covid-19. Áhöfnin hafði verið um þrjár vikur á sjó og sýndu nokkrir starfsmenn flensueinkenni. Í gær fóru áhafnarmeðlimir í mótefnamælingu og mun niðurstaðan liggja fyrir síðar í dag. Heimildir fréttastofu herma að þeir sem ekki eru sýktir séu ósáttir með að þurfa að vera áfram um borð í togaranum með hinum sýktu þar til niðurstaða liggur fyrir. Spurður út í hvort ekki hafi verið talið betra að þeir myndu vera í sóttkví heima hjá sér segir Þórólfur: „Það er bara ákvörðun þeirra fyrir vestan hvernig að því er staðið. Sumir búa þarna fyrir vestan en helmingurinn af áhöfninni býr annars staðar, býr hér á höfuðborgarsvæðinu til dæmis og það er meiriháttar mál að flytja þá á milli landshluta fyrr en við vitum hvernig staðan er. Það er allt bara í undirbúningi.“ Hættuspil að hópast saman Þó nokkuð margar líkamsræktarstöðvar opnuðu í gær í samræmi við reglugerð heilbrigðisráðherra. Reglugerðin heimilar líkamsræktarstöðvum að halda hópatíma þar sem tuttugu manna samkomubann er virt og ítrustu sóttvörnum fylgt. Ljóst er að margir hafa beðið spenntir eftir því að komast aftur í ræktina en til dæmis var nánast fullt í alla hópatíma hjá World Class í gær. Þórólfur kveðst hafa áhyggjur af því að smituðum geti fjölgað vegna þessa. „Ef fólk fer að hópast saman og það skiptir engu máli hvað við köllum starfsemina þar sem fólk er að hópast saman. Öll starfsemi þar sem fólk hópast saman og er kannski hvert ofan í öðru, það er áhættuspil hvað varðar veiruna og það er það sem við erum að reyna biðja menn um að forðast og gera ekki. Það er að segja að hópast ekki saman, vera ekki í mikilli nánd og passa snertingu á sameiginlegum hlutum, sótthreinsa og hreinsa vel,“ segir Þórólfur.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Líkamsræktarstöðvar Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið OpenAI hættir notkun raddar eftir inngrip lögmanna Johansson Erlent „Sjálfum leiðast mér þessar nasistalíkingar“ Innlent Réttað yfir Hinrik XIII og öðrum leiðtogum valdaránstilraunar Erlent Breytingar í borholum á Reykjanesi Innlent Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Innlent Lilja fundar með RÚV um „nýlenskuna“ Innlent Mynd fer á flug í kjölfar tilrauna til að láta fjarlægja hana Erlent Fengu ekkert merki frá þyrlunni sem hrapaði með forsetann um borð Erlent Einn látinn eftir mikla ókyrrð í lofti Erlent Biden segir Ísraela saklausa af ásökunum um þjóðarmorð Erlent Fleiri fréttir Hafa enga trú á að hvalveiðar fari fram í sumar Breytingar í borholum og fylgi frambjóðenda enn á hreyfingu Stefnir í spennandi og sögulegar forsetakosningar Erfiðast að fá Baldur til að tala um sjálfan sig Nýjar reglur um sjálfbæra landnýtingu Skúli metinn hæfastur í Hæstarétt Breytingar í borholum á Reykjanesi „Sjálfum leiðast mér þessar nasistalíkingar“ Lögreglan lýsir eftir fimmtán ára gamalli stúlku Hafa náð lendingu um staðarval nýs kirkjugarðs Lilja fundar með RÚV um „nýlenskuna“ Katrín leiðir í nýrri könnun Prósents „Viðurkenning á því að þetta er blaðamennska sem hann var að stunda“ Þolinmæði saminganefnda á þrotum Gæsluvarðhald yfir Davíð Viðarssyni framlengt 80 til 120 herskip lágu í Hvalfirði Fyrsti stríðsþristurinn lentur Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna sé vanhæft til að takast á við aðstæðurnar Handtökuskipun á hendur forsætisráðherra og kjaradeila Séra Eva Björk ráðin biskupsritari Fimm stríðsþristar á leiðinni til landsins Samningur BÍ í höfn í Karphúsinu Ráðherrar hafi verið ítrekað varaðir við gjöf Haraldar „Ég stóð bara með sóttvarnalækni“ Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Ósk um handtökuheimild og deilur um Erfðagreiningu Erfitt að ímynda sér meiri harðlínumann en Raisi Sat saklaus í unglingafangelsi í tvö ár Frambjóðendur geti nýtt sér skoðanakannanir Glæsilegt fuglasafn í veiðihúsinu við Hítará Sjá meira