Mokgræddi á Bitcoin en fyrrverandi sat í súpunni Árni Sæberg skrifar 22. janúar 2022 00:02 Rafmyntir á borð við Bitcoin munu líklega koma til með að velta upp mörgum álitamálum á sviði skataréttar. Getty Kona hefur fengið endurákvörðun ríkisskattstjóra um hækkun tekjuskattsstofns hennar um tíu milljónir króna fellda niður af yfirskattanefnd. Ríkisskattstjóri hafði hækkað skattstofn konunnar vegna vanframtalinna tekna fyrrverandi eiginmanns hennar af sölu á rafmyntinni Bitcoin.
Um var að ræða tekjur mannsins vegna gjaldáranna 2016 og 2017. Þegar ríkisskattstjóri innti manninn svara um hagnað hans af sölu rafmynta hafði hann eftirfarandi að segja: „Ég man ekki einu sinni hvar ég finn upplýsingar um kaup og sölu þannig að þið gerið bara eitthvað við mig ég redda þessu ég er á 45% bótum rúmur 100þ á mánuði haha verð fljótur að borga skattinn upp.“ Því áætlaði skattstjóri tekjur mannsins og lagði þær við skattstofn konunnar þar sem hún var tekjuhærri en maðurinn. Furðaði sig á fjármögnun útgjalda Í kvörtun konunnar til ríkisskattstjóra vegna álagningarinnar segir að hjónaband þeirra hafi verið orðið stirt árið 2017 og að þau hefðu ákveðið að skilja að borði og sæng í desember það ár. Þar segir að konan hafi ekki haft vitneskju um greiðslur til mannsins vegna Bitcoin-sölunnar en af gögnum málsins má sjá að þær greiðslur hafi fyrst borist um mitt 2016. Þá kemur þar fram að konan hafi verið burðarstólpi við fjármögnun heimilishalds þeirra hjóna og því hafi hann líklega hafið sölu Bitcoin eftir að samvistum þeirra lauk. „Hefði hann farið í ferðir erlendis og keypt sér bíl og hefði kærandi undrast hvernig hann fjármagnaði þau útgjöld,“ segir í mótmælabréfi konunnar. Með úrskurði ríkisskattstjóra um endurákvörðun var ákvörðun um hækkun skattstofns konunnar staðfest með vísan til þess að tekjur mannsins hafi verið vantaldar og að hjónin bæru enn óskipta ábyrgð á greiðslu opinberra gjalda. Samkvæmt ákvæðum laga um tekjuskatt bæri að leggja saman fjármagnstekjur hjóna og telja þær til tekna hjá því hjóna sem hefði hærri tekjur. Hafi ekki notið góðs af tekjunum Í kæru til yfirskattanefndar áréttaði konan að hún hafi ekki haft neina vitneskju um tekjur mannsins af sölu rafmynta og að þeim hafi verið haldið leyndum fyrir henni og hún því ekki notið góðs af þeim. Í úrskurði yfirskattanefndar segir að hjónin hafi enn verið sameiginlega ábyrg fyrir greiðslu opinberra gjalda fyrir gjaldárið 2016 þar sem þau skildu ekki fyrr en 2017. Var kröfu konunnar um niðurfellingu hækkunar skattstofns um tvær og hálfa milljón króna vegna framtalsársins 2017 því hafnað. Hins vegar taldi nefndin ríkisskattstjóra óheimilt að leggja tekjur hjónanna saman fyrir framtalsárið 2018 þar sem þau hefðu sannanlega slitið samvistum árið 2017. Var ákvörðun um hækkun skattstofns konunnar um tíu milljónir króna því ómerkt. Úrskurð yfirskattanefndar má lesa í heild sinni á vef nefndarinnar.
Skattar og tollar Rafmyntir Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Innlent Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Innlent „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Innlent Búast má við slyddu Veður Ný sýn fékk meirihluta Innlent Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Innlent „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Innlent Bíll logaði í Vesturbænum Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Slagsmál enduðu með nefbroti Innlent Fleiri fréttir „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Sáttasemjari boðar til fundar: Fimm dagar til stefnu Orkuskipti, innflytjendalöggjöf og bensínstöðvalóðirnar „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Ný sýn fékk meirihluta Slagsmál enduðu með nefbroti Bíll logaði í Vesturbænum „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Öruggara Suðurland“ – nýtt og spennandi verkefni Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Tólf tíma tökudagar og svo forsetaframboð Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Rýnt í forsetakappræður og fylgst með Bakgarðshlaupi „Ég get ekki annað en sagt satt“ Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Sólríkasta byrjun árs í Reykjavík í 77 ár Hafa rukkað þá sem valda sinubruna um kostnað við útkall Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Fjöldi verkfallsboðana á Keflavíkurflugvelli áhyggjuefni Kosið um sameiningu Húna- og Skagabyggðar í júní Sjá meira