„Maður þarf stundum að hrósa sjálfum sér“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 9. júní 2021 10:00 Karólína Lea Vilhjálmsdóttir fagnar með Jens Scheuer, þjálfara Bayern München. getty/Mika Volkmann Karólína Lea Vilhjálmsdóttir varð á sunnudaginn annar Íslendingurinn til að verða þýskur meistari með Bayern München. Hún kann vel við sig hjá þýska liðinu og býst við að fá stærra hlutverk hjá því á næsta tímabili.
Í lokaumferð þýsku úrvalsdeildarinnar á sunnudaginn vann Bayern 4-0 sigur á Frankfurt og tryggði sér þar með meistaratitilinn í fyrsta sinn síðan 2016. Karólína fylgdi þar með í fótspor Dagnýjar Brynjarsdóttur sem varð þýskur meistari með Bayern 2015. „Þetta var þvílíkt gaman og mögnuð tilfinning að vinna titil á mínu fyrsta tímabili. Þetta er einstakt lið með einstaka karaktera og þvílík liðsheild,“ sagði Karólína í samtali við Vísi. „Tilhlökkunin fyrir þessum leik var mikil og það var ekkert smá gaman að vinna. Mér fannst við eiga þetta svo mikið skilið, þetta er þvílíkt lið og allt í kringum það er til fyrirmyndar.“ Þýskalandsmeistarar Bayern München.getty/Peter Kneffel Erfitt er að mótmæla því að Bayern hafi meistaratitilinn skilið. Liðið vann tuttugu af 22 deildarleikjum sínum, gerði eitt jafntefli og tapaði aðeins einum leik. Bayern skoraði 82 mörk og fékk bara á sig níu. Karólína segir að fyrsta tímabilið í atvinnumennsku hafi verið afar lærdómsríkt. „Þetta hefur verið mjög gaman, mikill skóli en það vita allir að Þýskaland er ekkert grín. Ég hef lært rosalega mikið og nú fer held ég allt upp á við. Ég er ánægð en þetta hefur líka verið rosalega erfitt,“ sagði Karólína og bætti við að æfingaálagið í Þýskalandi væri mikið en ekki óviðráðanlegt. „Já, en ég myndi ekki segja að þetta væri ekki hægt. Ég þarf stundum að segja við sjálfa mig að vera stolt af mér að vera komin hingað eftir að hafa verið á Íslandi, að spila í Pepsi Max-deildinni og vera svo mætt í þýsku deildina og vinna hana. Maður þarf stundum að hrósa sjálfum sér líka. Stökkið er stórt en ekki of stórt.“ Þrátt fyrir að vera aðeins nítján ára hefur Karólína unnið þrjá meistaratitla á ferlinum, tvo á Íslandi og einn í Þýskalandi.getty/Alexander Scheuber Karólína var meidd þegar hún kom til Bayern en kom inn í liðið eftir að hafa náð sér af meiðslunum og tók þátt í sex deildarleikjum á tímabilinu. „Það er mikil trú á mér hérna og ef ég helst heil veit ég að ég fæ stærra hlutverk á næsta tímabili og kemst betur inn í hlutina. Þá fæ ég meira sjálfstraust og þetta snýst mikið um það. Ég þarf bara að halda áfram og halda rétt á spilunum,“ sagði Karólína.
Þýski boltinn Mest lesið Þjálfari Orra Steins sáttur: Hann hefur haldið kjafti Fótbolti Þurfti að eyða níu og hálfum tíma í leigubíl til að komast í burtu Sport Ákærður fyrir að slá barn sitt með blautu handklæði Sport Hrósar Alberti en Inter þarf að safna fyrir honum Fótbolti Landsliðsmaður blandar sér í umræðuna um umdeilda sigurkörfu Njarðvíkinga Körfubolti Saman á ný eftir súrrealískan dag: „Við erum eins og lím við hvorn annan“ Íslenski boltinn Áfall fyrir Vestra: Eiður Aron brotinn og lengi frá Íslenski boltinn Liðsfélagarnir í sumarfríi en hann að vinna tólf tíma á dag á Íslandi Körfubolti Fyrstir áfram en þjálfarinn meiddist alvarlega þegar leikmaður hans lenti á honum Körfubolti Sjáðu dramatíkina í fyrsta grasleiknum á KR-vellinum og öll hin mörkin Íslenski boltinn Fleiri fréttir Thiago Silva hættir hjá Chelsea en vonast til að synirnir spili þar áfram „Nú verður Edda brjáluð þegar ég hitti hana næst“ Mikil virðing fyrir Orra: Hárið stundum flækt en alltaf bros á vör Áfall fyrir Vestra: Eiður Aron brotinn og lengi frá Fyrstir í sautján ár til að vinna fjóra fyrstu leikina tvö ár í röð Tvær skráðar með sama númer á skýrslu og sú rétta fékk ekki markið Saman á ný eftir súrrealískan dag: „Við erum eins og lím við hvorn annan“ Sjáðu dramatíkina í fyrsta grasleiknum á KR-vellinum og öll hin mörkin Hrósar Alberti en Inter þarf að safna fyrir honum Þjálfari Orra Steins sáttur: Hann hefur haldið kjafti Hundraðasti sigur Arteta kom gegn erkifjendunum: „Stoltur af leikmönnunum“ Hetjan Orri Steinn eftir þrennuna: Besta tilfinning í heimi „Mér leið eins og ég væri í Keanu Reeves mynd“ „Röng ákvörðun af minni hálfu og ég tek fulla ábyrgð“ „Ekki boðlegt á þessu getustigi“ Uppgjör og viðtöl: KR - Breiðablik 2-3 | Blikar sóttu þrjú stig á grasinu í Vesturbænum Fowler hjálpaði Man City að styrkja stöðu sína á toppnum Lærisveinar Freys lifa í voninni „Veit ekki af hverju ég ætti að vera að láta mig detta“ Abraham bjargaði stigi sem gæti skipt Rómverja sköpum Uppgjör: Víkingur - KA 4-2 | Ekkert fær meistarana stöðvað Þrenna Orra Steins hélt titilvonum FCK á lífi Meistarar Man City halda í við topplið Arsenal Davíð Smári: Ekki okkar besta frammistaða Uppgjör og viðtöl: ÍA-FH 1-2 | FH-ingar sóttu sigur á Skagann „Björn Daníel sagði mér að skjóta“ Lyon í úrslit Meistaradeildar Evrópu Uppgjör og viðtöl: Vestri - HK 1-0 | Benedikt tryggði Vestra annan sigurinn í röð Arnór Ingvi skoraði það sem reyndist sigurmarkið Bournemouth fór illa með Brighton Sjá meira