Fótbolti

„Réttlæti fyrir Diego - hann dó ekki, þeir drápu hann“

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Diego Maradona á hátindi ferils síns sem langbesti fótboltamaður heims og heimsmeistari á HM 1986.
Diego Maradona á hátindi ferils síns sem langbesti fótboltamaður heims og heimsmeistari á HM 1986. Getty/Archivo El Grafico

Giannina, dóttir Diego Maradona, hvatti í gær aðdáendur föður síns til að fjölmenna í fyrirhugaða kröfugöngu í Buenos Aires, höfuðborg Argentínu.

Kröfugangan mun kalla eftir réttlæti fyrir Diego Maradona en hann lést 25. nóvember síðastliðinn þá nýorðinn sextugur.

„Réttlæti fyrir Diego“ kröfugangan á að enda við óbelískuna frægu í miðbæ Buenos Aires en gangan fer fram 10. mars næstkomandi.

Maradona lést tveimur vikum eftir að hafa gengist undir heilaaðgerð. Alls hafa sjö einstaklingar sætt rannsókn vegna dauða Maradona en þar á meðal eru heilaskurðlæknirinn Leopoldo Luque, sem framkvæmdi aðgerðina og geðlæknirinn Agustina Cosachov, sem hugsaði um Maradona eftir aðgerðina.

Rannsakendur eru að reyna að finna út hvort að þetta fólk hafi gerst sek um vanrækslu og þrír af þeim gætu verið ákærðir fyrir manndráp af gáleysi.

Skipuleggjendur kröfugöngunnar hafa sett fram slagorðið: „Réttlæti fyrir Diego - hann dó ekki, þeir drápu hann“

Giannina Maradona fór á Twitter og hvatti aðdáendur til að fjölmenna. Hún skrifaði: „Gerið það. Sjáumst öll þar. Sannleikurinn mun alltaf koma fram í dagsljósið,“ skrifaði Giannina.

Það má búast við fjölmenni í þessa göngu enda Diego Maradona það vinsæll í Argentínu að hann er í guðatölu.

Maradona er án vafa einn besti knattspyrnumaður sögunnar. Hann var yfirburðamaður í heiminum þegar hann var upp á sitt besta en vandræði utan vallar sáu til þess að fallið var hátt.

Maradona nánast tryggði Argentínumönnum heimsmeistaratitilinn upp á sitt einsdæmi á HM í Mexíkó 1986 með því að skora fimm mörk og gefa fimm stoðsendingar. Hann skoraði þá öll fjögur mörk liðsins í átta liða og undanúrslitunum og lagði síðan upp sigurmarkið í úrslitaleiknum. Argentína komst líka í úrslitaleikinn fjórum árum síðar með enn slakara lið.

Maradona hjálpaði líka Napoli að vinna ítalska meistaratitilinn tvisvar sinnum en félagið hafði aldrei unnið hann áður og hefur heldur aldrei unnið hann síðan. Napoli endurskírði völlinn sinn Stadio Diego Armando Maradona þegar hann lést.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×